Ritsmiðjur brjóta niður hindranir milli tungumála

Markmið Samljóða er að brjóta niður hindranir á milli tungumála, láta hugann tengja saman orð frá mismunandi menningar- og málheimum, sameina ljóðræn form og hugmyndir á leikandi hátt.

Samljóða er röð þriggja ritsmiðja sem hófu göngu sína á Borgarbókasafninu í haust. Nú þegar hafa verið haldnar tvær vel heppnaðar smiðjur undir leiðsögn Karólínu Rós Ólafsdóttur og Maó Alheimsdóttur. Sú þriðja og síðasta hefst í vikunni undir leiðsögn skáldkonunnar Marjón.

Ritsmiðja Marjón verður haldin í fjögur skipti í nóvember á Borgarbókasafninu Grófinni, á miðvikudögum frá kl. 16:30-18:00 og er ætluð áhugafólki um ljóðlist. Hentar jafnt byrjendum, lengra komnum íslenskunemum sem og þeim sem hafa íslensku að móðurmáli.

Auglýsing

Marjón mun skoða tilfinningatengsl okkar við tungumál, hvernig við getum brætt saman ólík mál, valið af kostgæfni orð sem við elskum, á íslensku eða öðrum tungumálum, og kannað ljóðræna merkingu þeirra. Markmið Samljóða er að brjóta niður hindranir á milli tungumála, láta hugann tengja saman orð frá mismunandi menningar- og málheimum, sameina ljóðræn form og hugmyndir á leikandi hátt.

Marjón, sem heitir fullu nafni Marion Poilvez, er innflytjendahöfundur og ljóðskáld, búsett á Íslandi. Hún notar brot úr íslensku, ensku, frönsku og spænsku til að skapa eins konar samsuðu-ljóð um reynslu innflytjenda, ef svo má að orði komast. Hún vann Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins 2025 með ljóðinu „Ég neita“, þar sem hún notar einföld íslensk orð til að lýsa upplifun af tungumálaruglingi og einangrun í íslensku samfélagi.

Þátttaka í ljóðasmiðjunni er ókeypis, engin skráning, bara mæta.

Sjá nánari upplýsingar um verkefnið Samljóða:

https://borgarbokasafn.is/samljoda-ritsmidjur