Sönglist steinsins

Njörður P. Njarðvík hefur yfirburða þekkingu á íslenskri ljóðagerð og bókmenntum. Þess vegna er óneitanlega áhugavert að fá í hendur bók þar sem hann rýnir í íslensk ljóð, skýrir þau og tengir við hefðir og menningu. Titillinn, Syngjandi steinn, vísar í síðasta ljóðið sem fjallað er um og er svo lokkandi og forvitnilegur að það er ekki hægt annað en kafa ofan í orðin til að komast að því hvernig, hvar og hvers vegna þau voru sett einmitt svona saman.

Njörður kenndi um árabil við Háskóla Íslands og þar var rýni af þessu tagi hluti af náminu. En þótt hann vinni með bragfræði og hefðbundin bókmenntafræðileg hugtök er það samt einstök innsýn hans í skáldlistina og hvernig hver höfundur setur sinn persónulega svip á ljóðin sem heilla lesendur mest í þessum greinum.

Ljóðlistin hefur fylgt Íslendingum lengi og á sérstakan sess í bókmenntasögu okkar. Lengi var það hluti af heimilislífinu hjá mörgum að lesa ljóð, kveða og yrkja sér til skemmtunar. Sá tími er liðinn en margt bendir til að ljóðin eigi greiðari leið að ungu fólki nú en var fyrir nokkrum áratugum. Rappið hefur að einhverju leyti fært þeim tilfinningu fyrir samspili hrynjanda og orða, opnað augu þeirra fyrir myndmáli og skapað áhuga á því hversu listilega er hægt að flétta saman orðum. Syngjandi steinn er tilvalin gjöf handa ungu fólki því hér er leiðarvísir að því hvernig er á að lesa ljóð, rýna í merkingu þeirra, leita að samhenginu, tengslunum og skoða hvert smáatriði einmitt þannig ljúkast upp dyrnar að Aladdínshellinum. En það þarf ekki ungt fólk til fyrir alla unnendur ljóðlistar er þessi bók algjört hnoss því hún endurvekur umræðuhefðina og gefur færi á að túlka og skoða, velta við hverjum steini og finna alltaf eitthvað nýtt.

Njörður P. Njarðvík (1936–) er prófessor emeritus í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands. Hann hefur sent frá  fjölda bóka, ljóð, skáldsögur, barnabækur, ævisögur, kennslubækur og fræðirit auk þýðinga. Njörður hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir bækur sínar og störf.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.