S.Á.R. eru upphafsstafir Sölku Álfheiðar Randversdóttur og vinkona hennar frú Sigríður veltir fyrir sér hvort þessi óheppilega samsetning stafanna hafi á einhvern hátt lagt línurnar varðandi framtíð barnsins. Salka er afburðagreint og heillandi barn í mikilli sorg og um hana fjallar bók Lilju Óskar Snorradóttur, Aumingi mella syndari heilagur andi.
Guð er hættur að tala við Sölku og hún leitast við að ná aftur að sambandi við hann. Sólbjört, móðir Sölku, er nýlátin. Ef nafn hefur á einhvern hátt forspárgildi um framtíðina má segja að nafn Sólbjartar hafi á margan hátt verið við hæfi en myrkrið samt náð að sigra. Hún listræn, glaðlynd, frjáls andi í samfélagi íhaldssemi, skilningsleysis og afturhalds. Þegar við bætist glíma við fíkn og andlegan sjúkdóm er ekki von á góðu og eftir heiftarlegt rifrildi milli hennar og Randvers rýkur Sólbjört illa klædd út í kulda og myrkur og verður úti. Eftir sitja þau Salka og Randver og reyna hvort um sig að takast á við sorgina og finna leið til að sætta sig við orðinn hlut.
Sagan er skrifuð af einstakri næmni og tilfinningu fyrir persónunum. Lilja Ósk er nýr höfundur en bók hennar Heimsins besti dagur í helvíti vakti mikla athygli þegar hún kom út í fyrra. Þetta er hennar fyrsta skáldsaga og sannarlega tilhlökkunarefni að sjá meira frá henni. Þrjár manneskjur segja söguna, Salka, Randver og frú Sigríður. Hvert þeirra um sig hefur mjög skýra rödd en sú áhrifamesta er rödd Sölku, sjö ára stelpunnar sem elskar móður sína heitar en allt annað. Greint barn sem reynir að ná einhvers konar skilningi á flækjum hinna fullorðnu og finna skjól. Meðan guð talaði við hana var allt gott og hún hafði stuðning af honum en nú hefur hann líka yfirgefið hana. Salka er gersamlega heillandi persóna og það eru ótrúlega margir einstaklega áhrifamiklir og heillandi kaflar í þessari bók sem er bæði holl og einstaklega góð lesning.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







