Að þekkja sinn vitjunartíma

Gunnar V. Andrésson hefur starfað í blaðamannastétt í áratugi sem fréttaljósmyndari. Hann er einn af fáum í þeirri stétt sem aldrei hefur fengið uppsagnarbréf en hann tók sjálfur ákvörðun um að hætta fastri vinnu 68 ára gamall og er nú 76 ára. Hann segir að í raun og veru hafi þungu fargi verið af honum létt þegar hann hætti að vinna því fréttaljósmyndum krefjist þess að allir séu alltaf á tánum og sífellt að berjast við svokölluð „deadline“ og því sé pressan oft mikil. „Ég hafði samt óskaplega gaman af vinnu minni í öll þessi ár en allt hefur sinn tíma,“ segir Gunnar sem þykir hann hafa verið lánsamur að hafa valið þennan starfsvettvang. „Ég var bæði les- og skrifblindur svo mörg önnur vinna var ekki í boði fyrir mig,“ bætir hann við en það er morgunljóst að Gunnar hefur tjáð sig rækilega í gegnum myndavélarlinsuna. „Ljósmyndunin féll alveg að löngun minni að vera á hreyfingu og búa til eitthvað sem skipti máli.

Voru mikið á fjöllum

Gunnar og Anna klifu Hvannadalshnjúk auk margra annarra fjalla á Íslandi.

Gunnar og eiginkona hans, Anna K. Ágústsdóttir, búa í Mosfellsbæ en þau ákváðu að sníða stakk eftir vexti og seldu húsið, sem þau byggðu 1979 í Reykjavík, þegar börnin voru flutt að heiman. Þau fluttu þá í hús sem stendur við bakka Varmár nærri Reykjalundi. „Við komum okkur fyrir þar á sínum tíma vegna umhverfisins. Við vorum þá með hund og þar voru flottar gönguleiðir. Við vorum þá svo spræk að við hjóluðum um allar trissur en útivist hefur alltaf verið stór þáttur í lífi okkar. Við vorum til dæmis í 15 sumur í beit einhvers staðar á fjöllum  með bakpoka hérlendis. Þetta eru fríin sem gleymast aldrei, að puða og svitna blautur og hrakinn en oft í unaðslegu veðri. Fyrir okkur var það að lifa lífinu,“ segir Gunnar og ljóst er að þau hjónin hafa verið alveg samstíga í þessu skemmtilega áhugamáli. „Ætli við séum ekki að njóta góðs af því núna, þegar við erum komin á þennan aldur, að hafa verið í mikilli hreyfingu alla tíð,“ segir Gunnar.

Aðeins farið að braka í

„Við erum bæði mjög vel á okkur komin þótt eðlilega sé aðeins farið að braka í,“ segir Gunnar og hlær. „Við erum komin á áttræðisaldur og þá er ekkert um að ræða að við förum heljarstökk lengur. Það er búið að skipta um hné í mér vegna járnríks blóðs sem var kvilli sem ég vissi ekki af en það skemmir liði. Ég get samt ekki kvartað því afleiðingar járnríks blóðs geta verið svo miklu verri en ég lenti í. Þegar ég kom aftur til vinnu eftir að hafa verið meira og minna til lækninga í tvö ár fann ég að það var komið  nóg. Kristín Þorsteinsdóttir var þá ritstjóri Fréttablaðsins en þar endaði ég starfsævina en hafði áður starfað á Tímanum og Vísi sem síðar sameinaðist Dagblaðinu og úr varð DV. Kristín sá á mér að ég var ekki sæll í inni-vinnunni sem ég var lentur í. Ég var þá orðinn 68 ára svo það var í raun góður tími til að hætta og ég gerði það. Stressið að tapa af góðu myndefni og gera almennt ekki nógu vel var farið að taka sinn toll.“

Auglýsing

Gunnar beið aldrei eftir myndefninu heldur byrjaði alla daga á að hlusta á fréttir og var alltaf með hugann við að þar væri gott myndefni. „Oftar en ekki heyrði ég eitthvað í útvarpinu snemma morguns sem gat orðið að mynd fyrir klukkan tíu þegar ,,deadline“ brast á. Ég var svo heppinn að ég fékk frelsi til að mynda það sem fyrir mig bar og hafa frjálsa hugsun og það gerði vinnuna auðvitað þeim mun skemmtilegri. Þegar ég hafði svo tekið ákvörðunina að hætta að vinna hresstist ég allur og Anna sagði að það væri bara allt annar maður sem mætti henni heima við,“ segir Gunnar og hlær.

Var illa skólagenginn en hefur aldrei séð uppsagnarbréf 

Gunnar segir að það hafi í raun verið tilviljun að hann lenti í ljósmynduninni. „Ég er bæði les- og skrifblindur sem háði mér í auðvitað í námi en þegar ég horfði í gegnum linsuna gerðist eitthvað undursamlegt. „Lesblindu krakkarnir lentu alltaf í tossabekk í gamla daga og fengu á sig þann stimpil,“ segir Gunnar. Hann segist hafa ágæta athyglisgáfu sem hefur eflaust eflst vegna fötlunarinnar sem lesblindan er. Hann getur nefnt marga listamenn sem hafa þjáðst af því sama.

Hefur verið klappaður upp þrisvar eftir starfslok

Gunnar hefur verið klappaður upp eftir að hann hætti formlega á  vinnumarkaði. „Um það leyti sem ég hætti að vinna var ég heiðraður með Fálkaorðunni,“ segir Gunnar stoltur. „Svo þegar

ég varð 75 ára tók Ljósmyndasafn Reykjavíkur upp á því að halda sýningu mér og verkum mínum til heiðurs. Sú sýning stóð í 7 mánuði á Ljósmyndasafninu, þar sem myndasafn mitt er varðveitt, en síðan var sýningin flutt í minjasafn Akureyrar þar sem hún stórð í þrjá mánuði. Svo var vinur minn Sigmundur Ernir Rúnarsson búinn að tala um að við gerðum saman bók og það varð úr. Við nefndum bókina Spegill þjóðar, hún sló í gegn og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna,“ segir Gunnar stoltur. „Við unnun þetta þannig að við völdum myndir, ég sagði söguna á bak við og Sigmundur skráði. Við erum mjög stoltir af þessari bók og vinnan við hana var ómetanlega skemmtileg.“

Nú stundar Gunnar líkamsrækt á hverjum degi

Gunnar fer í einhverja hreyfingu á hverjum einasta degi. Þau hjónin eru nú búsett á öðrum stað í Mosfellsbæ og þar hagar þannig til að þau geta gengið í sundlaugina og Gunnar gengur líka á golfvöllinn en Anna er hætt golfinu vegna gigtar í höndum. Hún gengur þá stundum á Úlfarsfellið á meðan Gunnar fer í golf.

Gítarinn er góður vinur

„Gítarinn er svolítið prívatmál hjá mér,“ segir Gunnar. „Ég kann nefnilega ekkert á hann en hef ógurlega gaman af að spila á hann. Ég á mér uppáhaldsfótboltalið og horfi töluvert á leiki og þykir óskaplega gott að gutla á gítarinn á meðan ég horfi. Fyrir mig er það nokkurs konar heilun,“ segir hann.

Var í hljómsveit

Gunnar var á æskuárum umboðsmaður og rótari í hljómsveit sem nefnd var Fjarkarnir. Gamlir æskufélagar hans voru í þeirri sveit en það voru auk Gunnars þeir Kristján Gunnarsson, Kristbjörn Þorkelsson, Jóhann Ögmundsson og Kristján S. Baldursson, sem nú er látinn. „Við erum allir nú komnir á áttræðisaldur og vitum vel hver af öðrum. Við spilum til dæmis golf saman og það eru skemmtilegar stundir. Þetta hljómsveitastúss hélt manni við eitthvað uppbyggilegt starf á sínum tíma og við gerðum þá ekki eitthvað annað og verra á meðan,“ segir Gunnar og brosir. Sonur hans og Önnu,  Ágúst Ævar Gunnarsson, er tónlistarmaður og spilar á trommur. Hann stofnaði ásamt fleirum hljómsveitina Sigurrós á sínum tím og spilaði á fyrstu plötunum þeirra. „Ágúst langaði að mennta sig meira og fór í grafíska hönnun í Listaháskólanum og hætti í hljómsveitinni,“ segir Gunnar. „Ágúst hefur alltaf vitað hvað hann vildi,“ bætir Gunnar við.

Hefur oft verið heiðraður

Heiðursmerki Gunnars í gegnum tíðina.

Gunnar í góðum hópi Fálkaorðuhafa.

Gunnar fékk fálkaorðuna. Hann var í stjórn skíðadeildar Fram og fékk gullmerki frá félaginu. Svo fékk hann gullmerki skíðasambandsins fyrir góð störf, gullmerki blaðamannafélagsins og svo var hann heiðraður með Fálkaorðunni fyrir vel unnin störf í þágu fjölmiðlunar á Íslandi.

Gunnar er óskaplega þakklátur fyrir allan heiðurinn sem honum hefur hlotnast. „Það var óneitanlega gaman að fá símtal frá skrifstofu forseta Íslands þar sem mér var tilkynnt að í mig ætti að hengja Fálkaorðu. Auðvitað þykir mér mikið vænt um það,“ segir Gunnar og brosir. Hann rifjar upp að hann hafi starfað í skíðadeild Fram í 10 ár og tekið þátt í að byggja skíðaskálann. „Á sama tíma byggðum við okkur hús og eignuðumst börnin. Ég hafði óskaplega orku og nýtti hana bara nokkuð vel,“ segir Gunnar sæll á svipinn.

Byrjaði 16 ára á Tímanum

Gunnar byrjaði 16 ára á Tímanum við klisjugerð. Hann hafði verið í vinnu hjá Sambandinu við mjölblöndun og lá veikur heima þegar hann sá þessa auglýsingu. „Í henni stóð að umsækjendur þyrftu helst að kunna nokkuð en gætu fengið að læra,“ segir Gunnar. „Mjölblöndunin var ógeðsleg og óþrifaleg vinna og fór mikið í vitin á mér en borgaði nokkuð vel. Ég hringdi af rælni í Tímann og þar svaraði Guðjón Einarsson ljósmyndari og sagði mér að koma til þeirra í viðtal. Ég var bara drjúgur með mig og Guðjón sendi mig til  framkvæmdastjórans Kristjáns Benediktssonar og ég hreppti starfið. Ég kunni ekki neitt en ég lærði og fljótlega varð ég fullgildur klisjugerðarmaður. Ég hafði haft 12.500 krónur hjá Sambandinu en var boðið 7.500 krónur hjá Tímanum og ég tók það. „Þetta hækkar ef þú stendur þig,“ sagði Kristján kankvís og það gekk eftir og ég þakka mínum sæla fyrir að hafa tekið sénsinn. Í ljósmyndadeildinni voru tveir ljósmyndarar að vinna, þeir Guðjón Einarsson og Bjarnleifur Bjarnleifsson og ég fór að fylgjast grannt með þeirra vinnu. Og ekki leið á löngu áður en ég fékk óbilandi áhuga á ljósmyndun og endaði á að kaupa myndavél af Bjarnleifi á 3.000 krónur. Og þá var ekki aftur snúið og ég fór að búa til myndir. Þá var gefið út sunnudagsblað Tímans og fyrsta myndin mín birtist á forsíðunni af tjaldi í rjóðri í Borgarfirði. Það var mynd sem sagði sögu og túlkaði hver fyrir sig. Ég stóð við prentvélarnar og fór drýgindalegur heim með nokkur eintök. Þar með var teningnum kastað. Þarna var Indriði G. Þorsteinsson ritstjóri og reyndist mér afskaplega vel. En Kári Jónasson, þá blaðamaður og síðar fréttastjóri útvarps fóstraði mig og var alltaf tilbúinn að liðsinna mér. Alfreð Þorsteinsson var ritstjóri íþróttafrétta en hann var líka harður og rýndi myndir mínar sannarlega til gagns. Af honum lærði ég mjög mikið.“

Farsæl saga

Svo var stóra lukkan í lífi mínu að hitta yndislega konu og við giftum okkar 24 ára gömul. Anna er lífleg og dugleg og við höfum baukað allt okkar líf saman og gætt þess að gera lífið að leik. Við eigum fjögur börn og nú eru meira að segja komin barnabarnabörn.

Gunnar er augljóslega sáttur við lífshlaup sitt, sýnir mynd af fjölskyldunni og er stoltur af sínum stóra hópi. „Lífið er auðvitað ekki hnökralaust og ýmislegt hefur gengið á en við höfum reynt að vera sæmilegar fyrirmyndir. Við stundum leikhús og mikið útivist, fórum til dæmis í mörg ár alltaf á skíði til útlanda á veturna og líka hjólaferðir. Svo eru það ógleymanlegu gönguferðirnar á Íslandi á sumrin. Nú förum við meira í ferðir með fararstjóra sem er líka skemmtilegt því allt hefur sinn tíma. Við höfum gætt þess að gera lífið að leik því hjónaband er auðvitað verkefni sem þarf að sinna vel,“ segir Gunnar.

——————————————————–

SÝNISHORN ÚR VINNUFERÐUM GUNNARS:

Guðjón Theodórsson og Lydía Guðjónsdóttir snjóuðu inni í húsi sínu.

Gunnar heyrði í  morgunútvarpinu í fólki  sem hafi ekki komist út úr húsi sínu í viku vegna snjókomu. „Þetta var í Smálöndunum í Árbæjarhverfi og ég fór strax við annan mann og myndaði þau. Þessi mynd varð að forsíðumynd þennan morguninn. Síðan fórum við eftir morgunfundinn fjórir saman og grófum þau út. Svona ævintýrum lenti ég oft í,“ segir Gunnar.

Þeir sem aðstoðuðu við moksturinn voru þeir Sigurður Þór Salvarsson, Kristján Már Unnarsson einnig og Jón G. Hauksson,  blaðamenn á DV

Sigurhanna knúsar bróður sinn, Guðlaug Friðþórsson, heimtan úr helju

Við vorum margir ljósmyndarar úti í Vestmannaeyjum á þessum tíma og flestir hinna  tóku mynd af Guðlaugi Friðþórssyni þar sem fjölskyldan stóð við rúmið þar sem hann lá. Ég sóttist alltaf eftir því að finna mér annað myndefni en hinir og þá bjó ég til þessa stemmningu þar sem ung systir Guðlaugs, Sigurhanna, knúsar bróður sinn, heimtan úr helju.

Forsætisráðherra bregður á leik

„Steingrímur hafði farið í aðgerð til að láta stífa ökklann. Ég hringdi heim til hans en þá sagði Edda, eiginkona hans, að Steingrímur væri farinn í vinnuna. Ég var hissa því ég hélt að hann væri rúmfastur en ég flýtti mér niður í stjórnarráð og náði þessari mynd þar sem hann er að stökkva á öðrum fæti upp á tröppurnar. Hann hafði séð mig og sagði svo með sinni silkimjúku röddu: „Var þetta ekki flott hjá mér“. Ég þekki engan blaðaljósmyndara sem hringdi í forsætisráðherra sinn til að fá myndefni,“ segir Gunnar og er verulega ánægður með sig. Hann má líka vera það því líklega hefur einmitt sá eiginleiki hans, að þora að sækja á fólk, orðið til þess að hann náði oft óvenjulegri myndum en margir aðrir. „Þetta gerði ég bara sjálfur frekar en að fara í gegnum blaðamenn sem fengu oft synjun og þá varð ekkert af myndatöku. Ég hafði einhverja þá sýn að myndin gæti verið möguleiki og kunni líklega að lesa í aðstæður.

                                               Myndin sem kallaði fram miklar tilfinningar í samfélaginu

Geir Waage og Séra Karl Sigurbjörnsson biskup að funda um afstöðu kirkjunnar til biskupsmálsins. Það sem gerði myndina svo sérstaka var að hún sýndi afstöðu biskupsstofu sem átti erfitt með að gangast við brotum Ólafs Skúlasonar en málverk af honum sést á myndinni sem  kallaði fram miklar tilfinningar í samfélaginu.

Snorri í Betel kveikir í sorpritum

Gunnar var sendur til Eyja að mynda Snorra í Betel sem hafði sagt að tímaritin á markaðnum væru blöð Satans. „Ég myndaði hann með fjölskylduna en sagði í lokin: ,,Hvernig væri að ég myndaði þig þar sem þú ert að kveikja í þessum ,,sorpritum.“ Snorra þótti það bara góð hugmynd og þannig náði ég þessari mynd sem varð forsíðumynd á helgarblaði DV.“

Sr. Gunnar Björnsson.

Sr. Gunnar setti sig í stellingar fyrir Gunnar

„Ég heyrðu í útvarpinu að það væru búnar að vera deilur á milli stjórnar Fríkirkjunnar og sóknarprestsins. Svo kemur í hádegisfréttum að stjórnin hafi látið skipta um sílínderinn í skránni á hurð kirkjunnar þannig að presturinn komist ekki lengur inn. Ég hringdi í Gunnar og sagði honum að mig vanti mynd þar sem hann er að reyna að komast inn í kirkjuna. Gunnar var alveg til í það og svo spyr ég hann hvort hann geti ekki verið í hempunni. Hann var til í það og segir svo: „Svo á ég  góðan pípuhatt, væri ekki sniðugt að ég væri með hann líka,“ og þá var ég sannarlega komin með gott myndefni,“ segir Gunnar og hlær.

 

 

 

 

 

 

Clinton þiggur pylsu

Bill Clinton fyrrum forseti Bandaríkanna við Pylsuvagninn í Tryggvagötu.

„Ég fylgdist mikið með Clinton þegar hann kom hingað, meðal annars þegar verið var að ganga með hann um miðbæinn. Þegar gengin var Tryggvagatan sagði ég við Mæju í Pylsuvagninum, sem horfði á hersinguna ganga hjá ,,bjóddu honum pylsu“.  Clinton leit á mig og sagði: „Why not?“ eins og hann hefði skilið orðaskiptin okkar Mæju og þar með náði ég mynd af honum borða eina með öllu,“ segir Gunnar og hlær. Þegar Clinton var farinn gekk ég að Mæju og sagði: „þú tókst mig á orðinu“ og þá sagði hún: „Já væni minn, þú færð eina.“ Dásamleg verðlaun fyrir heimssögulegt augnablik,“ segir Gunnar og skellihlær.

Vigdís í parís                                                                                        Vigdís bregður sér í parís í kosningabaráttunni.

„Þarna vorum við Páll Magnússon, þá ungur blaðamaður á Vísi og seinna útvarpsstjóri og þingmaður, að fylgja Vigdísi eftir um landið í kosningabaráttunni. Við mæltum okkur mót á Hellissandi en einhver misskilningur hafði orðið á milli þeirra sem sem höfðu átt að ná í hana á flugvöllinn svo við buðum henni bara far og ókum henni um allt Snæfellsnesið þennan dag. Úr því varð mikill vinskapur og ég ferðaðist mikið með henni um allan heim á meðan hún var í embætti. Hún var sko lang flottust alls staðar þar sem hún kom og það var gríðarlega gaman að vera ljósmyndarinn í þeim ferðum,“ segir Gunnar

Hægrihandarakstur tekinn upp

Gunnar farið niður í Útvarpshús við Skúlagötu og klifrað upp á borð ofarlega í húsinu til að ná sem bestri mynd af viðburðinum eldsnemma að morgni. Hann var með allan hugann við myndatökuna og þegar myndinni var náð sneri hann sér við og þá sat maður við borðið og kunnugleg rödd sagði: ,,Góðan daginn Gunnar.“ Þar sat þá Jón Múli Árnason mættur í vinnuna og brá ekki svip þótt á borði hans stæði maður með myndavél. Gunnar segir að myndin hafi verið sú mest notaða af þessum viðburði og margir kannist við.

Harpan í gegnum myndavélalinsu Gunnars

Sólveig Baldursdóttir, blaðamaður Lifðu núna, skrifar.