Um leið og kólnar í veðri fara kvefpestir og flensur að herja á fólk. Stundum gengur þetta yfir á nokkrum dögum en stundum tekur það lengri tíma. Það er vel hugsanlegt að þrálátur hósti herji á fólk í tvær til þrjár vikur eftir að bata er náð en þegar hann heldur áfram að trufla nætursvefn, særa hálsinn og trufla fólk við matarborð, á tónleikum eða í leikhúsi lengur en það er ástæða til að skoða málin. Þá getur verið um sé að ræða sýkingu sem þarf að bregðast við eða önnur undirliggjandi vandamál.
Þrálátur hósti er ein algengasta orsök þess að fólk leitar til lækna. Kvef og aðrar sýkingar í öndunarvegi valda hósta og sömuleiðis asmi. Stundum er einfaldlega eins og hóstinn ætli aldrei að lagast. Í sumum tilfellum geta sýkingar þróast út í bronkítis í lungum en þá bólgna lungnapípurnar og vöðvarnir í kringum þær en það þrengir öndunarveginn. Ef sýkingunni virðist lokið en hóstinn er enn til staðar er ástæð til að leita læknis og skoða orsakirnar.
En hvað er hósti? Hann er ósjálfrátt viðbragð við ertingu í hálsi eða lungum og verðmætt tæki því hann hjálpar til við að losa slím úr öndunarveginum og verndar lungun ef okkur svelgist á og matur eða drykkur fer ranga leið niður kokið. Með því móti náum við að halda öndunarfærunum hreinum. Margt annað en sýkingar geta valdið því að við hóstum daglega en það er sjaldnast lengi í einu eða eitthvað sem truflar svefnró. Algengustu ástæðurnar eru:
Sumir hósta þegar þeir anda að sér köldu lofti utandyra. Taugaendar í öndunarveginum geta verið viðkvæmir fyrir hitabreytingum og þá er eðlilegt viðbragð að hósta.
Bakflæði er einnig ástæða þess að fólk hóstar. Gas og sýra úr maganum flæðir upp í vélindað og þaðan upp öndunarveginn og veldur ertingu. Hóstinn er eina viðbragðið við því.
Ofnæmi getur einnig valdið aukinni slímframleiðslu og hóstaviðbrögðum.
Aukið slím í nefi eða nefrennsli veldur því að vökvinn lekur ofan í kokið og kveikir hóstaviðbragð.
Aukaverkanir með ákveðnum lyfjum meðal annars blóðþrýstingslyfjum.
Reykingar eru ein stærsta ástæða viðvarandi hósti. Margs konar önnur efni en nikótín eru í tóbaksreyk og þau skemma bifhárin í öndunarveginum og smátt og smátt verður erfiðara að halda honum hreinum. Reykingum fylgir einnig aukin slímmyndun og fólk verður að losa sig við slímið.
Ákveðnar fæðutegundur geta aukið hósta. Stökkar kökur sem brotna auðveldlega í smáar agnir geta ert öndunarfærin og sömuleiðis sterk krydd eins og chili.
Því miður eru fáar leiðir til að takast á við hóstann. Enginn lyf ná að slá á hann nema tímabundið og hægt. Hóstasaft, nefdropar, hálstöflur, heitir drykkir, hunang og fleiri þekkt húsráð og lyf geta hjálpað en ekki læknað vandann. En ef þessi ráð nýtast er sjálfsagt að nota þau. Heitir drykkir hafa þann kost að hjálpa fólki að halda hálsinum mjúkum, hunang sömuleiðis en engar rannsóknir benda til að hvítlaukur hafi áhrif á hósta en engifer getur dregið úr honum vegna þess að það hefur bólgueyðandi áhrif. En besta ráðið við kvefi og pestum er og verður áfram að hvíla sig, drekka vel af vökva og borða hollt.
Sumir telja að hægt sé að þróa með sér hósta sem ósjálfrátt viðbragð við erfiðum og streituvaldandi aðstæðum. Vísindamenn hafa rannsakað fyrirbærið sem er kallað taugatengdur hósti og segja að 1-2,5% fólks þrói með sér hóstaviðbragð sem það ræður ekki við. Þrátt fyrir að reynt sé að bregðast við hóstanum með lyfjum hverfur hann ekki. Læknar telja að hugsanlega sé um að ræða ofurviðkvæman öndurveg og þess vegna þoli þessir einstaklingar allt áreiti illa. Það er einnig til í dæminu að ef sumt fólk stendur frammi fyrir því að þurfa takast á við streituvaldandi aðstæður fær það óstöðvandi hóstaköst. Þau hverfa hins vegar þegar fólk kemst út úr aðstæðunum eða nær að slaka á.
Getur verið merki um alvarlega sjúkdóma
Þegar hósti verður nánast viðvarandi eða hefur verið að angra fólk í meira en tvo mánuði er mögulegt að einhver undirliggjandi orsök sé fyrir hóstanum. Þá er nauðsyn að leita læknis og biðja hann um að gera rannsóknir.
Fleiri sjúkdómseinkenni sem borgar sig að taka eftir:
Hóstar þú stöðugt upp grænu eða gulu slími?
Eru verkir fyrir brjósti?
Svitnar þú auðveldlega og færðu hita af og til?
Ertu farin/n að grennast án þess að ætla þér það eða gera neitt til þess?
Ertu farin/n að hósta upp blóði?
Mæðist þú auðveldlega þegar þú hreyfir þig eða reynir á þig?
Þessi einkenni geta verið vísbendingar um bakteríusýkingar í lungum eins lungnabólgu eða bronkítis, lungnatrefju, lungnaþembu eða lungnakrabbamein.
Þegar bakteríusýkingur ná að þróast geta þær leitt til alvarlegra sjúkdóma í lungum eins og lungnabólgu eða bronkítis. Þá þarf að bregðast við með fúkkalyfjum.
Lungnatrefun er íslenska heitið á lung fibrosis eða pulmonary fibrosis. Sjúkdómurinn lýsir sér í því að örvefur myndast í lungnavefnum og það verður erfiðara að anda. Einkennin eru helst, þurr hósti, mæði og mikil þreyta.
Lungnaþemba er alvarlegur sjúkdómur sem orsakast af reykingum. Lungnavefurinn er bólginn og skemmdur og það verður sífellt erfiðara að anda að sér og fyrir lungun að skila nægu hreinu súrefni út blóðið. Þrálátur hósti er eitt algengast einkenni þessa sjúkdóms. Besta ráðið til að bæta líðan sína er að hætta að reykja.







