Æ fleira fólk kýs fjarbúð fremur en hefja sambúð aftur eftir skilnað eða makamissi. Það kann vel við sjálfstæðið og telur að vel sé hægt að rækta ástina þótt fólk sé ekki saman í öllum frístundum og sofi ekki í sama rúmi nema um helgar. Rosknir einstaklingar sem vilja njóta félagsskapar velja líka stundum að búa saman en alls ekki giftast. Það er einfaldlega of flókið vegna erfðamála og annarra skuldbindinga.
Það er margt gott við þetta fyrirkomulag og samkvæmt nýjustu tölum er talið að allt að 25% fullorðinna í ástarsamböndum í Vestur-Evrópu, Kanada, Ástralíu og Bandaríkjunum kjósi þessa leið. Allir sem einhvern tíma hafa reynt sambúð þekkja að það getur kostað átök að samræma umgengnisreglur og venjur tveggja heimila. Að sama skapi verða oft aukin vandamál þegar fullorðin börn eru í spilinu sem hugsanlega hafa ýmislegt við það að athuga að foreldri þeirra sé að skapa sér líf með nýjum aðila. En hvernig sem því er háttað kallar ný sambúð ávallt á mikla aðlögunarhæfni og meiri þolinmæði og umburðarlyndi en margir búa yfir. Þess vegna er kannski ekki undarlegt að pör velji að flytja ekki saman. Þá er hægt að hittast þegar hentar á og njóta alls hins besta sem ástin býður upp á. Það er hægt að ferðast saman, fara á stefnumót og borða saman og deila rúmi þegar báðum hentar.

Sarah Paulson og Holland Taylor hafa lengi verið saman en búa hvor í sínu lagi.
Kvíðvænleg tilhugsun
Ein skýringin á því hvers vegna þessi valkostur er að verða svo algengur er sú breyting sem hefur orðið á stöðu kvenna. Þær geta haldið heimili á sínum tekjum eingöngu og eiga oft eignir. Þess vegna er ekki freistandi að þurfa að komast að niðurstöðu um verkaskiptingu, fjárhagslega ábyrgð og efnahag með nýjum maka. Heimilið er hægt að reka eins og áður en njóta svo þess sem almennt fylgir því að eiga maka.
Í hugum margra er líka kvíðvænlegt að þurfa að takast á við aðra sambúð. Hugsanlega endaði sú fyrri ekki vel eða makinn lést. Í fyrra tilfellinu getur verið mjög erfitt að treysta aftur og viðkomandi kann þess vegna vel við að halda ákveðinni fjarlægð. Í því síðara finnst mörgum mjög erfitt að sjá aðra manneskju stíga í spor makans sem það missti. Þetta þýðir ekki að ást sé ekki til staðar eða traust. Hitt er einfaldlega auðveldara og gefur jafn mikið.
En þótt fólk búi ekki saman eiga þessi pör það sameiginlegt að tala mikið saman. Þau eru í daglegu sambandi gegnum síma eða önnur samskiptaform og segja að sá síðasti sem þau tala við á kvöldin sé hinn aðilinn og sá fyrsti sem þau hringja í á morgnana. Þau segja mikla vináttu ríkja að þau leiti ævinlega fyrst ráða hjá ástinni sinni ef á þurfi að halda í dagsins önn og sömuleiðis sé númerið hennar það fyrsta sem hringt er í komi upp erfiðleikar eða áfall dynji yfir.
Konur áfram í hefðbundnum hlutverkum
En þrátt fyrir að flestir gefi upp að missi sjálfstæðis sem helstu ástæðu fyrir fjarbúð virðast konur engu að síður ganga inn í hefðbundin kynhlutverk í þessari tegund ástarsambanda. Matur er oftar eldaður heima hjá þeim og karlinn gistir oftar heima hjá konunni en ella. Þegar um samkynhneigð pör er að ræða er hið sama upp á teningnum, annar einstaklingurinn tekur fremur á móti hinum og sér þá um mat, drykk og að veita húsnæði. Stundum er praktískar ástæður fyrir þessu en oftast er líklega einfaldlega um að ræða félagslega mótun.
Þegar fjarbúð hefur varað lengi er algengt að parið kjósi að flytja í nágrenni við hinn aðilann. Sum slík pör erlendis búa í sömu götu, aðeins eitt til tvö hús á milli. Þessi sambönd eru ekki opin og báðir aðilar vænta skilyrðislauss trúnaðar og einkvænis. Algengasta samsetning para í fjarbúð eru þrenns konar, fólk sem segist ekki tilbúið að búa saman strax vegna aðstæðna barna sinna eða annarra í fjölskyldunni. Það kann að vera að viðkomandi sé aðalumönnunaraðili eldri ættingja og vilji ekki leggja það á nýjan maka eða þann einstakling að nýr aðili komi inn í líf þeirra. Svo er ungt fólk sem hefur ekki áhuga á hefðbundnu hjónabandi eða sambúð. Eldra fólk sem vill njóta náinna samvista, eiga vin, en er ekki tilbúið að rugla saman reitum því það getur verið flókið vegna eigna og erfðaréttar barna. Víða erlendis er sömuleiðis um að ræða efnahagslegar ástæður, fólk hefur ekki efni á að kaupa húsnæði sem hentar sameinaðri fjölskyldustærð þeirra beggja og svo er til í dæminu að hörundslitur eða trú haldi fólki frá hvort öðru.

Gillian Anderson og Peter Morgan eru ástfangin en kjósa fjarbúð fremur en sambúð.
Kostir og gallar
Í eigindlegri rannsókn sem gerð var í Bretlandi var talað við fimmtíu pör sem kusu fjarbúð framyfir sambúð eða giftingu. Í öllum tilfellum hafði fólkið verið saman lengi. Rannsakendur tóku nokkur viðtöl við parið saman, sitt í hvoru lagi og aftur eftir nokkrar vikur. Ein rannsóknarspurningin var hvort fólkið teldi sig lifa eiginlegu fjölskyldulífi. Ein konan, Michelle, hafði þetta að segja: „Ég vil ekki missa húsið mitt. Ég vil heldur ekki að einhver telji sig eiga tilkall til mín, að hann eigi mig. Ég vil ekki þola barsmíðar frá einhverjum sem segist elska mig.“
Annar þátttakandi Maggie sagði: „Ég kann vel við heimilið sem ég hef sett saman og byggt upp og kæri mig ekki um að þurfa að taka tillit til smekks annarra á innanstokksmunum eða því hvernig hlutunum er komið fyrir. Það hentar mér vel að fá gest og ég hef gaman af að þjóna honum og gera vel við hann. En svo er hann farinn og ég get aftur haft mína hentisemi.“ Aðspurð að því af hverju hún kysi að þá að vera í sambandi svaraði hún: „Ég elska hann og þykir gott að vera í félagsskap hans. Ég er alveg tilbúin að þvo af honum þegr hann er hjá mér, elda ofan í hann og þrífa eftir hann. Á móti býður hann mér út að borða eða á einhverja skemmtun þegar ég bið um það. Við erum meira heima hjá mér en honum því hér líður mér best.“
Graham var einnig meðal þeirra sem talað var við hann sagði: „Ég upplifði mikla streitu í sambandinu við fyrrum konuna mína. Eftir að við skildum stóð ég uppi á götunni, varð að finna íbúð og koma mér fyrir á nýjum stað. Ég lofaði sjálfum mér að það skyldi aldrei henda mig aftur.“
Wendy taldi sig líka þurfa að setja mörk. „Maðurinn minn var mjög vondur með víni og kom mjög illa fram við mig og son minn. Ég ákvað að hann þyrfti aldrei aftur að upplifa þannig framkomu.“
Ekki alltaf sársauki að baki
Augljóst er af þessum svörum að allt þetta fólk hafði upplifað sárindi og erfiðleika í fyrri samböndum og kaus því að byggja upp ákveðnar varnir. En svo var ekki um alla.
Oscar og Emma voru bæði komin um sjötugt þegar þau kynntust og höfðu bæði misst maka. Þau sögðu: „Við höfum bæði okkar föstu venjur og líður vel hvort á sínu heimili. Það er gott að hittast og njóta saman. Við förum líka saman til útlanda og út að dansa.“
Hið sama gilti um John og Ellen. Hann er vegan og mikill umhverfissinni. Á hans heimili ríkja því mjög ákveðnar reglur um flokkun sorps, plastnotkun og fleira. „Mér fannst það einfaldlega of mikið álag ofan á ábyrgðarmikið starf og umönnun barna að setja mig inn í allt sem hann gerir. Mér finnst hann aðdáunarverður og vildi gjarnan vilja gera jafn mikið fyrir jörðina okkar og hann gerir en tel mig ekki hafa tíma,“ segir hún.
„Ég ætlast alls ekki til þess að aðrir geri allt nákvæmlega eins og ég,“ segir hann. „Ég hef góðan tíma því ég vinn að heiman og get ræktað eigið grænmeti í garðinum. Kannski flytjum við einhvern tíma saman en eins og stendur hentar þetta okkur vel.“ Þess má geta að John og Ellen búa í sömu götu.
Ben hefur hins vegar aldrei búið með konu og finnst það ekki eftirsóknarvert. Hann segist vera haldin skuldbindingafælni og þess vegna sé þægilegt fyrir að hann að vera í fjarbúð og hann vill halda sambandinu opnu, að báðir aðilar geti farið á stefnumót með öðrum ef þá langi til þess.
Öll þessi 50 pör töldu sig hafa fundið góða leið til að njóta þess besta sem náið samband við aðra manneskju hefur upp á að bjóða án þess að þurfa að stíga út fyrir þægindarammann eða gefa eftir sín mörk. Þau töldu að fjarbúð gæfi þeim færi á að minnka streitu og kvíða tengda samskiptum og sambúð við aðra. Að auki hefðu þau ekki þurft að fórna eigin öryggi og skjóli ef illa færi og sambandið endaði með skilnaði.
Líka á Íslandi
Fjarbúð nýtur líka aukinna vinsælda hér á landi. Við ræddum við par sem vill ekki koma fram undir nafni svo við gáfum þeim nöfn.
Elín og Arnar eru til dæmis í fjarbúð. Það kemur til af tvennu segja þau. „Hann býr í bæjarfélagi rétt hjá höfuðborgarsvæðinu en ég er í Reykjavík,“ segir Elín. „Ég myndi aldrei vilja flytja til hans en hann er ánægður þar sem hann er. Við höfum svo sem rætt það að flytja saman en teljum ekki að það myndi bæta neinu við sambandið.“
„Ég hef ákveðinn lífsstíl,“ bætir Arnar við. „Ég er með hesta og á hund. Gæludýr eru ekki leyfð í húsinu hennar Elínar og ég gæti aldrei látið dýrið mitt frá mér. Hugsanlega gætum við fundið eitthvað húsnæði sem hentaði okkur báðum en þá þyrfti ég að keyra á milli til að sinna hestunum. Í augnablikinu er ég mjög ánægður með þetta eins og það er og Elín er frábær manneskja.“
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







