Hamingjan er hér
Rétt eftir áramótin árið 1971 var boðað til bekkjarkvölds í bekknum mínum. Við vorum tólf ára og þetta fyrsta ballið eða skemmtunin sem daðraði við að vera fullorðins. Auðvitað var ákveðinn spenningur í gangi og við töluðum ekki um annað.







