Nýlega var farið að bjóða fullorðnu fólki á Íslandi að bólusetja sig gegn ristli. Margt bendir til að þetta bóluefni gagnist einnig gegn mörgum öðrum sjúkdómum og að það geti virkað sem vörn gegn elliglöpum. Þeir sem óska eftir slíkri bólusetningu greiða fyrir hana sjálfir og í dag kostar hún 26.600 kr. Þá er spurningin er það þess virði?
En fyrst af öllu hvað er ristill? Ristill er veira Herpes Variella eða Herpes Zoster skyld frunsuveirunni og sjúkdómur sem eingöngu kemur fram hjá fólki sem hefur sýkst af hlaupabólu. Ef fólk sýkist af ristli er hann eftir það til staðar í líkamanum, falinn í skyntaugum og haldið í skefjum af ónæmiskerfinu. Hann getur blossað upp aftur og valdið óþægindum. Ef hann kemur fram í taugum eins og sjóntaug, jafnvægistaug eða heyrnartaug getur hann valdið skaða á þeim og valdið blindu, skertu jafnvægi eða heyrnardeyfð.
Bóluefni gegn ristli er ætlað til að minnka líkur á ristilútbrotum og fylgikvillum þeirra hjá fólki sem hefur fengið hlaupabólu. Hér á landi hafa mjög margir fullorðnir annað hvort fengið hlaupabólu eða verið bólusettir gegn henni og allir mega fá bólusetningu gegn ristli séu þeir ekki sýktir af hlaupabólu. Bóluefnið heitir Shingrix og því geta fylgt aukaverkanir eins og bólga og roði í húð og í örfáum tilfellum fær fólk hita, höfuðverk og vöðvaverki.
Af hverju ættu menn að leggja þetta á sig?
Ristill veldur sársaukafullum húðútbrot veiran verður aftur virk. Líkurnar á að smitast af ristli eða að hann vakni af dvala aukast með aldrinum. Veiran er einnig skæðari meðal eldra fólks og það er líklegra til að fá fylgikvilla. Einn algengasti fylgikvillinn er post-herpetic neuralgia (PHN), eða taugaverkur eftir ristil. Hann getur valdið hvössum, brennandi taugaverk sem getur varað í marga mánuði eða jafnvel ár. Í sumum tilfellum deyr fólk af völdum veirunnar. Breska heilbrigðisöryggisstofnunin (UKHSA) segir að bóluefnið dragi úr
Getur bóluefnið gegn ristli dregið úr hættu á heilabilun?
Ein ástæða þess að margt eldra fólk hefur áhuga á að fá bóluefnið er nýleg niðurstaða rannsókna sem benda til þess að Shingrix gæti einnig dregið úr hættu á heilabilun. Greint var frá niðurstöðum rannsóknanna í Nature árið 2025 en þær sýndu að bólusetning gegn ristli tengdist allt að 20% minni hættu á heilabilun. Vísindamenn benda þó á að gögnin séu ekki einhlít. Orsök og afleiðing hafi ekki verið staðfest ennþá; heldur sýni rannsóknirnar frekar fylgni. Önnur nýleg rannsókn, sem kynnt var á alþjóðlegri ráðstefnu í júlí á þessu ári, komst að því að bólusetningin gæti alls ekki haft áhrif á heilabilun, þótt hún drægi úr tilfellum ristils. Læknar benda hins vegar á að öll bóluefni geti hugsanlega dregið úr hættu á heilabilun vegna þess að þau draga úr sýkingarhættu og bólgum.
Ávinningur varðandi heilablóðfall og hjartasjúkdóma
Ný rannsókn sem birt var í ágúst 2026 bendir til þess að Shingrix-bóluefnið gæti veitt vernd gegn hjartasjúkdómum og heilablóðfalli. Sú rannsókn var gerð í háskólanum í Oxford bendir til þess að tveir skammtar af bóluefninu séu sambærilegir við notkun blóðþrýstingslyfja og virðist bóluefnið draga verulega úr hættu á hjartaáfalli og heilablóðfalli.
Vísindamennirnir segja að ef allir yfir sextugt í Bretlandi yrðu bólusettir með Shingrix gæti komið í veg fyrir tugþúsundir dauðsfalla. Ef niðurstöður þessarar rannsóknar verða staðfestar í klínískum rannsóknum gæti bólusetning eldra fólks gegn ristli komið í veg fyrir hundruð þúsunda tilfella kransæðasjúkdóma, heilablóðfalla og hjartabilunar um allan heim. Hún gæti þannig orðið ein áhrifamesta inngripsaðferð sem menn hafa til að vernda bæði heilann og hjartað á efri árum. Enn eru þessar rannsóknir það nýjar af nálinni að vísindamenn forðast að fullyrða eitthvað um niðurstöðurnar en óumdeilt er að Shingrix dregur úr líkum á að fólk fái ristil. Hver og einn verður auðvitað að svara því fyrir sig hvort hann telur bólusetningu gegn Herpes Zoster-veirunni gagnlega og þess virði að borga fyrir hana.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







