Kynning

Áhyggjulaust ferðalag í úrvalshópi

Fátt er jafn skemmtilegt og að ferðast. Kynnast nýjum menningarheimum og  sjá fallegustu staði jarðar með eigin augum. Sumir kjósa að skipuleggja sín ferðlög sjálfir en þægilegast og áhyggjuminnst er auðvitað að láta fagmenn um allan undirbúning og þurfa ekkert að gera annað en að mæta tímanlega á brottfararstað.

Margar ferðaskrifstofur bjóða upp á sérferðir fyrir eldra fólk. Dagskráin tekur þá mið af því og hægt að ganga að því vísu að fólk þurfi ekki að leita uppi lestarstöðvar, rútustoppstöðvar, finna út úr tímatöflum og leita hagkvæmustu leiðanna. Ferðir fyrir Úrvalsfólk hjá Úrval Útsýn er dæmi um ferðir af þessu tagi og þar gefst ferðlögnum tækifæri á að ferðast, njóta þess að skoða sig um með jafnöldrum streitulaust.

Verona,Italy – August 29, 2013: Beautiful architecture of UNESCO world heritage site city Verona. Tourists and locals visiting Arena di Verona and Piazza Bra.

Helstu kostir þess að kaupa skipulagðar ferðir:

  • Minni streita: Sérfræðingar í ferðaskipulagningu hafa þegar séð um að panta ferðir, farartæki, hótel og aðgöngumiða að stöðum sem á að heimsækja. Þar með losnar fólk við að leita uppi miðasjálfsala, standa í biðröðum og finna réttu lestarnar, rúturnar eða strætisvagnana. Það munar miklu þegar ferðast er um að ókunnum stað.
  • Öryggi og trygging: Þegar ferðast er í hópi þarf vissulega að taka tillit til annarra en að vera í hópi skapar öryggi. Oft skapast skemmtileg stemning innan hópsins og hann verður trygging fyrir því að hjálp er alltaf nærri.
  • Fararstjórn: Fararstjóri er til staðar ef eitthvað kemur upp á, aðstoðar og finnur leiðir ef á þarf að halda. Þeir eru einnig til að upplýsa, benda á áhugaverða staði, segja frá menningu og sögu staðarins og fleira.
  • Tækifæri til að mynda nýja vináttu: Ferðalög í hópi skapa gott tækifæri til að kynnast nýju fólki og mynda vináttu. Að ferðast saman og upplifa ævintýri skapar ómetanleg tengsl og getur styrkt bönd á milli fólks. Stundum verður samferðafólkið verðmætasta minningin úr ferðinni.
  • Sveigjanleg dagskrá: Dagskrá skipulagðra ferða er sjaldnast svo stíf að ekki sé hægt að aðlaga hana að þörfum hvers og eins. Ekki þarf alltaf að taka þátt í þeim viðburðum sem hafa verið skipulagðir og í einhverjum tilfellum kysi fólk kannski að sleppa einum viðkomustað eða borða annars staðar og oftast er lítið mál að ganga frá því.
  • Betri verð og aukinn aðgangur: Flestir veitingastaðir og aðrir áfangastaðir veita hópafslátt. Þegar ferðast er í hópi hefur allt verið greitt fyrirfram og fólk iðulega fengið besta mögulega verð. Í sumum tilfellum er aðgengi að ákveðnum stöðum aðeins opið hópum eða eingöngu farið með hópa á einhvern tiltekinn hluta áfangastaðarins.

Þeir sem vilja ferðast áhyggjulaust og án nokkurrar streitu ættu því tvímælalaust að skoða úrval skipulagðra ferða og velja sér áfangastað hjá traustum og reyndum ferðaskipuleggjendum.

https://uu.is/ferdir/urvalsfolk/

https://uu.is/ferd/perlur-gardavatns-og-verona-2/