Fanga fegurðina í hinu smáa

Laugardaginn 7. mars opnar Ljósmyndaklúbburinn BLIK skemmtilega öðruvísi sýningu á Borgarbókasafninu Spönginni.

Það smáa er yfirskrift ljósmyndasýningar sem verður opnuð á Borgarbókasafninu Spönginni laugardaginn 7. mars.

Það er Ljósmyndaklúbburinn BLIK sem stendur að baki sýningunni, en BLIK er klúbbur fyrir áhugafólk um ljósmyndun og var stofnaður árið 2008. Meðlimir koma víða að á Suðurlandi, Vesturlandi og höfuðborgarsvæðinu og eiga það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á ljósmyndun.

Fyrir sýninguna á Spönginni fóru Blikarar örlítið „út fyrir þægindaramman“, eins og þeir komast sjálfir að orði, þar sem þeir beindu linsunni að „hinu smáa“ í tilverunni, eða því sem fólk veitir kannski ekki endilega alltaf athygli í umhverfi sínu.

Þannig verður hið smáa „stórt“ í meðförum ljósmyndaranna sem eiga verk á sýningunni og minnir um leið á að fegurðin í smáatriðunum birtist þeim sem gefa sér tíma til að staldra við og njóta hennar.

Ljósmyndasýningin Það smáa verður opnuð á Borgarbókasafninu laugardaginn 7. mars kl. 13:00. Sýningin stendur til 28. mars.

Ókeypis er inn á sýninguna.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbokasafn.is