Fataskápurinn og framtíðin

Ný viðburðaröð um fatnað, textíl, ábyrgari neyslu og hringrásarhagkerfið hefst á Borgarbókasafninu Gerðubergi í kvöld, miðvikudagskvöldið 11. mars. Viðburðirnir eru haldnir í samstarfi við Listaháskóla Íslands og verða í umsjón Rögnu S. Bjarnadóttur, lektors og fagstjóra við fatahönnunarbraut LHÍ.

Ragna S. Bjarnadóttir

Næstu þrjú miðvikudagskvöld verður boðið upp á nýja og áhugaverða viðburðaröð á Borgarbókasafninu Gerðubergi í umsjón Rögnu S. Bjarnadóttur, lektors og fagstjóra við fatahönnunarbraut Listaháskóla Íslands.

Fyrsti viðburðurinn fer fram annað kvöld, miðvikudagskvöldið 11. mars, milli kl. 19:30-21:00, en þá mun Ragna flytja erindi og leiða spjall um textíl, fatnað, fataskápinn og hringrásarhagkerfið í tengslum við fatakaup og ábyrgari neyslu. Yfirskrift erindisins er Fataskápurinn og hringrásarhagkerfið.

Fataviðgerðir fyrr og nú verða síðan til sérstakrar umræðu miðvikudagskvöldið 18. mars. Þá flytur Ragna erindið Fötin sem við gerum við, eru fötin sem skipta máli, en í því verður sjónum beint að skapandi viðgerðum, ósýnilegum viðgerðum og tilfinningunum og virðinu sem liggur í sumum flíkunum okkar.

Skapandi fataviðgerðir er yfirskrift smiðju sem Ragna og Katrín Káradóttir, sem einnig kennir við fatahönnunarbraut LHÍ, leiða miðvikudagskvöldið 25. mars. Þar geta þátttakendur prófað sig áfram í fataviðgerðum og kynnt sér aðferðir til að lengja líftíma fatnaðar. Á staðnum verða sýnidæmi, fræðsluefni, verkfæri, saumavélar, garn og textílefni. Þátttakendur eru þó hvattir til að taka með sér flíkur sem þarfnast lagfæringa, fjölbreyttan efnivið og eigin verkfæri.

Make-a-thek

Viðburðaröðin fer fram undir merkjum „make-a-thek“, alþjóðlegs verkefnis sem Borgarbókasafnið Gerðubergi er þátttakandi í til næstu þriggja ára. Markmið verkefnisins er að búa til vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (e. prosumers) meðal annars til að læra nýjar aðferðir í handavinnu, glæða gamlar flíkur nýju lífi og deila þekkingu. Make-a-thek er styrkt af Evrópusambandinu.

Nánar á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbokasafn.is