Gefur garn og glæðir notaðar flíkur nýju lífi

Hönnuðurinn Hinda Mandell heldur spennandi smiðju í hekli á Borgarbókasafninu Gerðubergi laugardaginn 14. febrúar.

Komið með notaðar flíkur, hnepptar skyrtur eða stuttermaboli úr góðri bómull eða þéttu efni, sem vantar smá ást og alúð, á Borgarbókasafnið Gerðubergi núna á laugardaginn 14. febrúar, sjálfan Valentínusardag, kl. 14:00.

Hönnuðurinn og höfundurinn Hinda Mandell mætir alla leið frá New York og verður með skemmtilega og gagnlega smiðju á bókasafninu þar sem hún kennir þátttakendum að hekla fallega kanta á notaðar flíkur.

Gott er að kunna smávegis í hekli til að fá sem mest út úr smiðjunni en Hinda mun aðstoða þátttakendur við komast í gang með verkefnin sín. Og ekki nóg með það heldur gefur hún viðstöddum garn sem hefur verið handlitað í hverfinu hennar í New York.

Heitt verður á könnunni og kærleikur svífur yfir vötnum á safninu.

Ókeypis verður í smiðjuna.

Öll hjartanlega velkomin.

Um Hindu Mandell

Hinda Mandell er rithöfundur og prófessor við School of Communication við RIT – Rochester Institute of Technology í New York. Hún ritstýrði meðal annars bókinni Global Craftivism since the Pussyhats: Handcraft Responses to Violence, War, Illness and Isolation, sem þykir sannkölluð veisla fyrir áhugafólk um handverk.

Nánar um viðburðinn á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbokasafn.is

Nánari upplýsingar veitir:

Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri Borgarbókasafninu Gerðubergi

ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is