Í leit að lífsfyllingu

Allir upplifa einhvern tíma að finnast líf þeirra frekar innantómt og ekki margt til að veita ánægju. Þá er um að gera að finna sér nýjar leiðir til að skapa sér afþreyingu og gleði. Hér eru nokkrar hugmyndir að góðum leiðum til einmitt þess.

  1. Að taka sér tíma til að skipuleggja næstu daga, skrifa lista yfir það sem mann langar að gera og setja upp tímaáætlun um hvað eigi að gera fyrst, hvað næst og svo framvegis getur hjálpað til við að koma sér að því að gera eitthvað nýtt.
  2. Að sýsla við pottaplöntur, gefa þeim áburð, umpotta eða búa til litla garða í fallegum pottum er gefandi og róandi. Japanir búa oft til litla innigarða í kringlóttum pottum þar sem skiptast á þykkblöðungar, laufjurtir, fallegir steinar og fleira. Það getur verið einmitt það sem þú þarfnast til að lyfta þér upp.
  3. Eitt það fyrsta sem menn verða varir við á þegar þeim líður ekki vel er að svefninn versnar. Þyngingarábreiður hjálpa mörgum að sofa betur, lengur og hvílast í djúpsvefni.
  4. Ekki er langt síðan að litabækur fyrir fullorðna voru rosalega vinsælar. Þær eru góð leið til að gleyma sér um stund við að fylla út mynstur og skapa fallegar litasamsetningar.
  5. Raunar er öll handavinna mjög slakandi og róandi. Gríptu prjóna, saumaðu út, hnýttu makrame eða heklaðu.
  6. Listsköpun er líka góð útrás og skapar hugarró. Mótaðu leir, málaðu eða teiknaðu.
  7. Margir tengja ákveðna lykt við gleði og kjósa að kveikja á ilmkerti eða fara í heitt bað með róandi baðsalti eða freyðibaði í. Láttu það eftir þér.
  8. Að halda dagbók getur gefið mikla ánægju. Skrifa hjá sér hvernig því líður, minna sig á það góða í lífinu og fara yfir hvaða athafnir hafa hjálpað í það og það sinnið. Margir kjósa líka að fylla dagbækurnar af myndum, úrklippum, aðgöngumiðum og fleiru sem hjálpar til við að rifja upp skemmtilegar minningar þegar þeim er flett.
  9. Orð hafa áhrifamátt. Sumir finna huggun í að lesa ljóð eða spakmæli sem varpa ljósi á lífið og tilveruna. Hægt er að kaupa kort með slíkum orðum og meðal annars eru íslensku Styrkleikakortin hennar Eddu Björgvinsdóttur góð leið til að minna sig á hvað maður getur. Að setjast niður draga spil og velta fyrir sér merkingu orðanna um stund getur verið á við góða hugleiðslu.