Litir hafa mikil áhrif á fólk og því meira sem litróf litanna er rannsakað því ljósara verður hversu tilfinningatengd upplifun fólks á litum er. Þetta endurspeglast víða í menningunni og tilteknir litir notaðir til að mynda að tjá sorg, gleði, reiði eða önnur mannleg viðbrögð. Nokkuð er mismunandi eftir svæðum hvaða litir veljast en alls staðar eru þeir hafðir í hávegum og fá hlutverk í daglegu lífi.
Hér koma nokkrir litir og úttekt á hvernig þeir hafa verið notaðir í gegnum tíðina í ýmsum menningarheimum.
- Appelsínugult tengist mjög andlegri upplifun og stuðlar að andlegu jafnvægi. Ef fólk horfir á appelsínugulan lit hluta úr degi kemst betra jafnvægi á efnaskiptin, endurnýjun frumna í líkamanum eykst sem og löngun til hreyfingar. Appelsínugulur litur dregur einnig úr tilhneigingu til depurðar og þunglyndis. Í snyrtivöruiðnaðinum er það vel þekkt að appelsínugulur litur yngir húðina. Appelsínugulur litur saffran-kryddsins er mjög heilagur í hindúatrú. Hann stendur fyrir hreinleika og trúarlega afneitun. Hann er sá litur, sem heilagir menn er hafa dregið sig í hlé frá veröldinni, klæðast. Í Japan og Kína táknar hann hins vegar heppni, ást og hugrekki.
- Hvítt gefur orku. Hvítur litur örvar og bætir meltinguna og brennslan verður meiri þegar fólk er í hvítu umhverfi. Þessi kaldi litur er góður til að endurnýja batteríin eftir langan og erfiðan dag og hann kemur einnig jafnvægi á taugakerfið. Hann er því mjög góður þegar fólk þjáist af flugþreytu. Hvítur litur er mjög oft notaður til að hjálpa fólki með árstíðabundið þunglyndi. Í vestrænni menningu er hann tákn sakleysis og venja að brúðir klæðist honum á brúðkaupsdaginn. Í hindúisma táknar hann hins vegar þekkingu, hreinlæti og frið.
- Fjólublátt róar taugarnar. Fjólublár litur hefur góð áhrif á taugakerfið. Hann örvar sogæðakerfið, kemur af stað brennslu í líkamanum og eykur virkni andoxunarefna. Fjólublár hefur góð áhrif á svefninn og þeir sem sofa í fjólubláu herbergi eða með fjólublá rúmföt ná dýpri og betri svefni en aðrir. Liturinn hefur einnig góð áhrif á heilaköngulinn sem sýnir greinileg merki um aukna starfsemi þegar horft er í fjólublátt ljós. Heilaköngullinn gegnir mikilvægu hlutverki í framleiðslu vellíðunarboðefnisins melatóníns. Víða um heim er hann litur konungaætta. Þetta var dýr litur að ná fram með litunartækni fyrri tíma og þess vegna oftast ekki á færi nema allra ríkasta fólks að kaupa hann. Víða er hann tákn sorgar og dauða og því notaður við jarðafarir. Að auki er hann nátengdur hugrekki samanber að æðsta heiðursmerki Bandaríkjahers er The Purple Heart eða Purpurhjartað.
- Rautt örvar vöðvana. Rauður litur örvar vöðvana og kynhormónana. Vísindamenn hafa komist að því að rautt ljós eykur varnarviðbúnað fólks en það virkar róandi á ofvirk börn. Rautt ljós sést lengra að en allt annað sýnilegt ljós og rauður er fyrsti liturinn sem ungbörn skynja. Hann er áhrifamesti liturinn í Hindúatrú og stendur þar fyrir völd, auð, frjósemi, aðlöðunarhæfni, ást og fegurð. Hann er tákn eldsins og því óttast hann margir. Kannski hefur hann þess vegna verið valinn til að vara við hættu í vestrænni menningu. Í Suður Afríku er hann táknmynd sorgar.
- Blátt hjálpar þér að sofa betur. Púlsinn hægist og adrenalínframleiðsla minnkar þegar fólk horfir í blátt ljós. Æðarnar dragast saman og blóðþrýstingur lækkar. Blár litur hefur róandi og svæfandi áhrif á fólk. Að horfa í bláa ljósið dregur einnig úr bólgum og sýkingum. Sjúkraþjálfarar nota gjarnan blátt ljós til að draga úr bólgum og minnka verki hjá slösuðum íþróttamönnum. Í Bandaríkjunum fékk blár á sig þunglyndislegan blæ og menn sögðust vera „blue“ þegar þeir voru niðurdregnir. Þaðan dró svo blústónlistin nafn sitt. Þessi merking bláa litarins hefur náð útbreiðslu m.a. til Evrópu en víða í Miðausturlöndum er hann ímynd öryggist og hlýju. Í markaðsfræði er hann talinn endurspegla traust og þess vegna velja margar fjármálastofnanir hann í lógó sín og kaupsýslumenn klæðast gjarnan bláum fötum. Himininn er blár og þess vegna hefur blái liturinn víða verið tákn eilífs lífs og guðdómsins, m.a. í gyðingtrú.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.