Loftslag og fréttir til sölu!


Mengun í lofti í Reykjavík á síðasta degi ársins.

Á Íslandi er stundum talað um að áhugi á umhverfis- og loftslagsmálum hafi minnkað síðustu árin, af því að ekki eru grænir flokkar á Alþingi. Eins er talað um bakslagið stóra í heiminum, þar sem umhverfismál, mannréttindi og fleiri helstu áskoranir mannkyns falla í skuggann af stríðum og efnahagsmálum. Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar var svo heppin að fá að taka þátt í ráðstefnu vísindafólks og fjölmiðlafólks frá nokkrum löndum sem hittust í Vínarborg á dögunum og ræddu meðal annars um upplýsingaóreiðu og fjarveru loftslagsumfjöllunar úr fréttum stóru fjölmiðlanna. Okkur lék forvitni á að vita hvers Björg varð áskynja á þessum áríðandi fundi og það var sannarlega margt og mikið.

Auglýsing

„Ráðstefnugestir voru sammála að loftslagsmál þyrftu stóraukið vægi í fjölmiðlum og að helstu og stærstu fjölmiðlar virðast ekki hafa nægilegan áhuga eða þekkingu á málaflokknum til þess að staðreyndir og fréttir skili sér til almennings,“ segir Björg……… „Fjölmiðlafólkið var ekki alveg sammála um lausn vandans en allir töldu grænþvott og upplýsingaóreiðu stóran hluta vandans. Sumir töldu þörf á meiri sérhæfingu, fjölmiðlar væru að veikjast, væru of litlir og að það þyrfti sérstakar deildir innan stórra fjölmiðla fyrir málaflokkinn eins og fyrir íþróttir, menningu eða stjórnmál. Aðrir töldu það óráð, af því loftslagsmálin koma inn á alla málaflokka samfélagsins og eigi ekki að loka inn á sérstakri deild. Með því verði þau áfram fjarverandi úr almennum fréttum, en þau þurfi að vera hluti af nær öllum fréttum.

Frummælendur á ráðstefnunni lýstu nokkuð samhljóma erfiðri reynslu af því að setja loftslagsmál á dagskrá meginstraums fjölmiðla. Vísindaleg nálgun á loftslagsvandann er ekki málefni sem auðvelt er að koma inn í daglegar fréttir og jafnvel ekki einu sinni fréttaskýringar. Loftslagshamfarir rata í fréttir, en annað síður. Aðferðin til að koma loftslagsmálum að er alltaf sú að segja sögu. Sagan þarf að vera spennandi, frumleg, hún þarf að snerta líf viðtakandans beint, helst núna, en ekki í óljósri framtíð. Hægt er að koma að fréttum um nýja tækni, ráðstefnur, framleiðsluaðferðir og tækifæri, en erfitt er að koma að fréttum sem innihalda gagnrýni á markaðslega mikilvæg fyrirtæki.

Stórfyrirtæki í auðlindanýtingu hafa góða burði og mikla ástæðu til að halda úti öflugum samskiptadeildum sem dæla út „fréttum“, til að sýna almenningi fram á að einmitt þeirra framkvæmdir séu þær sjálfbærustu, grænustu og hreinustu sem völ er á. Auðlindanýtingin er alltaf kynnt sem lykillinn að betri framtíð fyrir okkur öll. Fyrirtækin bregðast eðlilega ekki vel við fréttum sem gagnrýna þá ímynd og hluti af leiknum er að segja þá sem gera athugasemdir við óreiðuna andstæðinga framfara eða öfgasinna.

Það er gömul saga og ný að fréttir séu markaðsvara í meira en einum skilningi. Þær þarf að selja viðtakanda fréttarinnar og hagsmunir eigenda fjölmiðilsins hafa áhrif. Mismikil en alltaf einhver. Staðreyndir eru ekkert endilega besta söluvaran og allsstaðar í heiminum sjást tilburðir daglega til að ná stjórn á umræðu og fréttaflutningi. Kannski er það ástæðan fyrir því að fréttamenn í umhverfis- og loftslagsmálum stofna í vaxandi mæli eigin miðla til að koma upplýsingum áfram, hlaðvörp og allskyns miðla? Alveg sama hvaða form er á miðlun, til að ná útbreiðslu þarf fjármagn.

Alltaf er hressandi að hitta fólk frá ólíkum löndum til að sjá stærra samhengi. Það er líka hressandi þegar fjölmiðlafólk ræðir af hreinskilni aðstæðurnar sem það starfar við, en ekki bara ímyndina um hinn óháða, sannleiksleitandi fjölmiðil,“ segir Björg og eins og gefur að skilja er henni mikið niðri fyrir.

Björg Eva Erlendsdóttir.