Laugardaginn 21. nóvember verður sannkölluð markaðsstemning á Borgarbókasafninu Spönginni þar sem handverksfólk mun sýna og selja fjölbreytt verk sín.
Handverksfólk í Grafarvogi býður gestum og gangandi á handverksmarkað á Borgarbókasafninu Spönginni á morgun, laugardaginn 21. nóvember.
Á markaðnum verða til sýnis og sölu verk unnin úr alls kyns efnum og með ólíkum aðferðum, svo sem prjónað og heklað handverk, tréverk, myndlist, keramik, handunnin kort og skartgripir, púsldagatöl, gjafapokar úr endurnýttum textíl og ýmislegt fleira.
Á staðnum verður einnig ljósmyndari sem býður gestum upp á myndatöku.
Handverksmarkaðurinn verður opinn á afgreiðslutíma bókasafnsins frá kl. 11:00-16:00.
Öll hjartanlega velkomin!
Nánari upplýsingar á heimasíðu Borgarbókasafnsins:






