Og nú brestur hann í söng

Fátt er sumarlegra en dans- og söngvamyndir, enda er sögusvið margra þeirra einmitt sumar og sól. Nú þegar efnisveitur eru í auknum mæli farnar að veita áskrifendum aðgang að eldra efni er ekki úr vegi að rifja upp nokkrar söngvamyndir. Þær skapa sumargleði í hjörtum manna sem endist lengi.

Rocketman og Bohemian Rapsody

Í Rocketman er byggt á ævi Elton Johns og lögin hans hljóma í gegnum myndina. Hún kom út árið 2019 ári á eftir Bohemian Rapsody en þar var fjallað um Freddie Mercury. Þótt tveir gerólíkir menn séu umfjöllunarefni þessara mynda eiga þeir sameiginlegt að hafa verið risar í tónlistarlífinu og eftir þá liggja meistaraleg lög sem eru löngu orðin klassísk. Bara þess vegna er tímanum vel varið í að horfa á kvikmyndir um þá.

Mamma Mia! Og svo aftur

ABBA-aðdáendur glöddust ósegjanlega þegar ákveðið var að gera dans- og söngvamynd byggða á vinsælustu lögum hljómsveitarinnar. Árið 2008 kom fyrri myndin og tókst frábærlega þótt leikararnir væru misgóðir söngvarar voru þau öll svo skemmtileg að ekki var hægt annað en að hrífast með. Árið 2018 kom svo Mamma Mia 2: Here We Go Again. Að þessu sinni voru allir á sínum stað nema Meryl Streep en í hennar stað birtist Cher, ógleymanleg, í lokin. Amanda Seyfried, Colin Firth, Pierce Brosnan, Stellan Skarsgård, Christine Baranski og Julie Walters voru öll á sínum stað og jafndásamleg og áður.

A Star Is Born

Varla er nokkur maður búinn að gleyma Stjarna fæðist frá 2018. Hún naut gríðarlegra vinsælda þótt um væri að ræða fjórðu endurgerð þessarar sögu. Bradley Cooper skrifaði handritið, leikstýrði og lék aðalkarlhlutverkið á  móti Lady Gaga. Tónlistin í myndinni er frábær og dúett þeirra Bradleys og Gaga algjörlega stórkostlegur. Þetta er reyndar vasaklútamynd líka en það er ekkert verra.

The Greatest Showman

Þessi mynd kom út árið 2017 og byggir á ævi P. T. Barnum, sirkusstjórans sem sló í gegn í Bandaríkjunum. Þarna er fullt af fínni tónlist, stórkostlegum sirkusatriðum og sagan er bara nokkuð góð. Hinn ástralski Hugh Jackman fær líka að sýna á sér aðra hlið og er flottur í sínu hlutverki.

La La Land

Allir muna eftir þessari áhugaverðu mynd frá árinu 2016, enda sló hún rækilega í gegn hjá gagnrýnendum og var tilnefnd til ótal Óskars- og Bafta-verðlaun og fékk allnokkur. Leikstjórinn Damien Chazelle fékk hugmyndina að því að para saman unga leikkonu í leit að gæfu og gengi í Hollywood og djasstónlistarmann upptekinn af heilindum í tónlist sinni. Litríkir búningar, flottir dansar og grípandi lög sjá svo um restina.

Vesalingarnir

Vesalingarnir eða Les Miserables frá 2012 skartar Hugh Jackman í aðalhlutverki og hér fékk hann fyrst að sýna hversu góður söngvari hann er í stórmynd. Sagan gerist á  nítjándu öld og segir sögu Jean Valjean sem stelur brauði og er dæmdur til margra ára þrælkunarvinnu. Hann strýkur, hittir prest og sannan mannvin og snýr við blaðinu. Hann tekur að sér munaðarlausa stúlku en er hundeltur alla ævi af lögreglumanninum Javert.

Sunshine on Leith

Ef þú ert í hópi þeirra sem söng með The Proclaimers, I will walk five hundred miles eða I‘m gonna be, eins og lagið heitir raunar, máttu til að horfa á þessa. Rauðhærðu tvíburarnir með skoska hreiminn slógu nefnilega í gegn á Íslandi en áttu erfiðar uppdráttar annars staðar. Engu að síður urðu þeir nógu þekktir til að þessi mynd var gerð í kringum lögin þeirra. Þetta er rómantísk saga og notaleg. Ekta sumarmynd.

Manstu þessar?

Söngvamyndirnar eru jafngamlar kvikmyndasögunni og hér eru nokkrar sem enginn ætti að missa af.

Hairspray

Þessi er frá árinu 2007 og John Travolta er dásamlegur í hlutverki Ednu Turnblad. Christopher Walken fær að sýna hvað hann er frábær dansari og Michelle Pfeiffer er æðisleg. Sagan hverfist um Tracy Turnblad sem elskar að syngja og dansa. Hún kemst inn í sjónvarpsþátt fyrir hæfileika sína og frægðin bíður handan við hornið.

Fame

Þessi klassíska mynd frá 1980 er eiginlega ómissandi á lista allra söngvamynda aðdáenda. Við fáum að fylgjast með nemendum í framhaldsskóla þar sem sviðslistir og sköpun eru aðalnámsbrautir og viðleitni þeirra til að ná að slá í gegn.

Chicago

Söngleikurinn hefur verið settur á svið oftar en tölu verður á komið en þessi kvikmynd frá árinu 2002 skartar Catherine Zeta-Jones og Renee Zellweger í hlutverkum hinna harðsoðnu kvenna, Velmu Kelly og Roxie Hart. Richard Gere er einnig flottur í sínu hlutverki en þessi mynd stendur og fellur með konunum.

Moulin Rouge

Baz Luhrman skapaði meistarverk árið 2001. Hér er byggt á sögunni Kamelíufrúnni eftir Alexander Dumas og Víólettu í La Traviata. Baz notfærði sér vinsæl popplög og fléttaði þau inn í söguna. Nicole Kidman og Ewan McGregor leika aðalhlutverkin og bæði eru fínir söngvarar. Þessi er rómantísk, falleg og sorgleg. Í vetur var sýndu söngleikur gerður upp úr myndinni í Borgarleikhúsinu og mjög góð hugmynd að horfa á myndina í sumar og fara á sýninguna í haust þegar leikhúsið opnar aftur.

Grease

Það er erfitt að ímynda sér að þessi mynd sé orðin fjörutíu og þriggja ára svo mikil áhrif hafði hún og enn er verið að tala um hana og vísa í hana. Bókstaflega allir virðast þekkja hana. Í sumar væri virkilega gaman að rifja upp kynnin við Sandy, Danny, Rizzo, Kenickle og alla hina.

Rocky Horror Picture Show

Talandi um búninga, hver getur gleymt Rocky Horror Picture Show. Myndin frá árinu 1975 hefur fyrir löngu fengið kultstatus og sumir horfa á hana minnst árlega. Kíktu í heimsókn í höll Dr. Frankenfurter eina dimma óveðursnótt og það er nokkuð víst að þaðan ferðu ekki ósnortin/n.

Auglýsing

Eiginlega er ekki hægt að skilja við söngvamyndir án þess að minnast á Cabaret með Lizu Minelli, Fiðlarann á þakinu frá árinu 1971 með Topol og Normu Crane í aðalhlutverkum. Nú og Funny Girl með Barböru Streisand, My Fair Lady, Sound of Music og Mary Poppins en í öllum þeim myndum flytur rödd Julie Andrews tónlistina í hæstu hæðir. Hið sama á við um allar myndir Judy Garland. Ef fólk er búið að gleyma hennar einstöku rödd ætti það að venda bráðum bug að því að bæta þar úr.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.