Einskonar eftirmáli – myndband við nýtt lag Jóhönnu Þórhallsdóttur

 

 

Einskonar eftirmáli

Lag: Jóhanna V. Þórhallsdóttir

Texti:  Guðmundur Sigurðsson

 

Við höfum alltaf á alvörutímum lifað

einkum að dómi þeirra sem mest hafa skrifað

en þó að tilveran silist með svipuðum hætti

hún semur í líf vort  fjölmarga gamanþætti

 

Og máske finnast margir er ljá þeim eyra

en miklu fleiri hvorki sjá þá né heyra

og þeim væri hollt í alvöru að yfirvega

hve alvaran stundum gerir oss spaugilega

 

og Göthe karlinn sem grúskaði þó í flestu

á gamalsaldri taldi það oss fyrir bestu

að taka lífinu létt á hverju sem gengi

maður lifir svo skammt og er dauður svo óralengi

Ritstjórn nóvember 5, 2014 13:56