Heimurinn er breyttur og fólki bæði lifir lengur og er heilsuhraustara lengur, segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingflokksformaður VG, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag sem heitir Tímarnir breytast og mennirnir með. Bjarkey telur að eitt af því sem þurfi að endurskoða í ljósi þessa, sé ellilífeyrisaldur. Hún hefur lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að hafnar verði viðræður við samtök opinberra starfsmanna um að felld verði úr lögum ákvæði sem takmarka starfslok opinberra starfsmanna við 70 ár. Síðan segir hún í greininni.
Ég tel að þetta sé nauðsynleg og tímabær breyting. Þau rök liggja fyrir í núgildandi lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins að 60-70 ára gamlir starfsmenn viðurkenni það sjaldnast sjálfir að þeir séu ekki lengur vinnuhæfir og að veita þurfi ungum mönnum færi til að komast til starfa. Vissulega þarf að tryggja að ungt fólk komist að vilji það starfa fyrir hið opinbera. Því fylgir oftast ferskur blær og ný sjónarmið. Hins vegar er ekki hægt að líta framhjá því að eldri starfsmenn, sem kannski hafa starfað fyrir hið opinbera í fjölda ára, búa yfir reynslu og þekkingu em getur reynst dýrmæt, jafnt fyrir starfsemina sjálfa og fyrir nýja starfsmenn.
Það skýtur skökku við að um leið og fólk nær ákveðnum aldri eigi það að vera óhæft til starfa, líkt og einhver hafi ýtt á hnapp. Því tel ég nauðsynlegt að gera þeim, er þess óska, kleift að starfa áfram og hafa heilsu til eftir 70 ára aldurinn.
Málið sem nú liggur fyrir Alþingi er ekki lagt fram með það að leiðarljósi að hvetja eða þrýsta á opinbera starfsmenn að lengja starfsævi sína. Þvert á móti tel ég það lykilatriði að starfsmennirnir sjálfir fái að meta það hvenær þeir vilji hefja lífeyristöku, hvort sem það er fyrir eða eftir sjötugt. Ég tel að það sé einnig mikilvægt að gera starfsfólki sem nálgast lífeyrisaldur kleift að lækka starfshlutfall sitt.
Þessar breytingar vill Bjarkey að gerðar verði í samvinnu við samtök opinberra starfsmenna, enda sé mikilvægt að þeirra sjónarmið komi fram þegar verið sé að breyta lögum og reglum sem snerta þá.