Hvernig hljómar að setjast niður á bókasafninu síðdegis, fá sér kaffibolla og hlusta á lifandi upplestur úr bók?
Sunnudaginn 8. mars býður Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og fyrrum bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar, gestum og gangandi með í heillandi könnunarferð um bernskuna, þegar hún les upp úr skáldævisögunni Límonaði frá Díafani eftir Elísabetu Jökulsdóttur á Borgarbókasafninu Úlfarsárdal.
Bókin segir af stúlkunni Ellu Stínu sem skellir sér í frí með fjölskyldunni til Grikklands og skottast þar um allt með yngri bræður sína á meðan foreldrarnir eru yfirleitt uppteknir við skriftir. Löngu seinna snýr Ella Stína aftur til Grikklands og veltir þá fyrir sér hvað hafi orðið af sólbökuðu fjölskyldunni sem eitt sinn var.
Límonaði frá Díafani var mest lesna og lánaða bókin í flokki ævisagna og bóka almenns efnis árið 2025 á Borgarbókasafninu, en hún hefur fengið góða dóma og þykir kallast á við fyrri verk Elísabetar Saknaðarilm og Aprílsólarkulda sem slógu rækilega í gegn.
Upplesturinn úr bókinni er liður í nýrri viðburðaröð Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal sem ber heitið Húslestur. Þar er lesið upp úr vinsælustu bókum síðasta árs og gefst gestum tækifæri til að setjast niður og njóta upplesturs í notalegu umhverfi í flutningi Sunnu Dísar. Að lestri loknum gefst svo kostur á léttu spjalli fyrir þau sem vilja staldra við og ræða verkin.
Húslestur á sunnudag hefst kl. 16:00.
Ókeypis er inn á viðburðinn og öll hjartanlega velkomin.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Borgarbókasafnsins:







