Sennilega hafa flestir einhvern tíma talað við sjálfan sig. Oftast gerum við það í hljóði en af og til hefjum við upp róminn og eigum jafnvel í hrókasamræðum við okkur sjálf. Sumir gera þetta skipulega, spjalla við sjálfa sig eða æfa samræður sem þeir ætla að eiga við aðra. Þeim finnst það hjálpa. En hér áður var talið merki um andlega veilu og alls ekki góðs viti en er það svo?
Að sögn geðlækna er fullkomlega eðlilegt að tala við sjálfan sig og mjög algengt að fólk geri það „Sannleikurinn er sá að við tölum öll við okkur sjálf,“ segir Vironika Tugaleva höfundur bókarinnar Listin að tala við sjálfan þig (The Art of Talking to Yourself) í viðtali við Huffington Post. „Það kann að virka skrýtið ef maður gerir það upphátt úti á meðal annarra manna en við eigum öll í flóknum og marglaga samtölum við okkur sjálf í huganum.“
Á þann hátt náum við að koma böndum á og skilja allt það sem hendir yfir daginn. Við tölum við okkur sjálf til að skýra hlutina, endurmeta þá og ljá þeim merkingu. Strax á morgnana förum við yfir í huganum hvort allt sé tilbúið og komið, nestið handa börnunum, lyklarnir í veskinu, bíllykillinn, yfirhafnir og skólastöskur. Við búum til lista í huganum og merkjum við eftir því sem verkefnin klárast. Stundum leyfum við okkur að fara yfir hann upphátt, þ.e. lykar, já, taska já, nesti já, slökkva á kaffikönnunni já.
Kostir þess að tala við sjálfan sig.
Það er bæði heilbrigt og nytsamlegt að tala við sjálfan sig. Til að mynda á það þátt í koma okkur í gegnum erfiðleika. Margir sem missa ástvin eða eru fjarri þeim af einhverjum ástæðum kannast við að það getur dregið úr söknuðnum að tala við hann. Þú getur sagt honum hversu vænt þér þykir um hann, hversu þakklát/ur þú ert fyrir tímana ykkar saman og að hafa hann í lífi þínu. Rætt misklíð ykkar í milli, tíundað tilfinningar þínar og margt fleira. Allt þetta kann að hjálpa þér að sætta þig við varanlegan missi eða stytta biðina eftir að þið sameinist á ný ef hann er tímabundið í burtu.
Umhyggjan og ástúðin sem þú sýnir á þennan hátt hefur mjög heilandi áhrif því í raun ertu að næra sjálfan þig, sýna sjálfum þér móðurþel. Þetta hjálpar einnig við að draga fram jákvæðu hliðarnar og skapa jákvæðari tilfinningar en söknuð og sorg.
Auk þessa er hægt að tala sig að niðurstöðu í margvíslegum hversdagsvandamálum. Hefur þú til dæmis áhuga á að sækja um nýja stöðu á vinnustað þínum? Langar þig í nám? Er ferðalag á framandi slóðir fjarlægur draumur eða í kortunum? Ræddu kosti og galla við sjálfa þig, möguleika á að láta drauminn rætast og hvaða hindranir þarf að yfirstíga. Orð hjálpa mönnum að búa sér til skýra mynd af aðstæðum sínum og þar með að finna lausnir á hindrunum.
Talaðu í þig kjark
Að tala við sjálfan sig hjálpar sömuleiðis að létta á kvíð og undirbúa menn fyrir erfið verkefni. Leikarar og ræðumenn þekkja það vel að tala við sjálfa sig áður en þeir þurfa að standa frammi fyrir áheyrendum sínum til að fá talfærin í gang, hita sig upp. Það er gott að fara yfir í huganum helstu atriði hlutverksins eða ræðunnar. Á sama hátt getur það hjálpað þér að renna yfir þínar hugmyndir fyrir fundinn eða kynninguna sem þú átt að halda. Það hjálpar þér að móta hugmyndirnar og hvernig þú vilt koma þeim á framfæri. Slíkt sjálfstal hjálpar þér einnig að mynda fjarlægð og sjá það sem framundan er í faglegra og hlutlausara ljósi.
Sá sem talar við sjálfan sig er einnig í núinu. Hann er ekki hlaupinn í huganum fram í tímann eða fastur í særindum fortíðar. Á meðan hann þarf að setja hlutina í setningar og finna leið til að setja fram tilfinningar sínar getur hann ekki hugsað um annað. Allt þetta er af hinu góða og sérfræðingar eru sammála um að það að tala við sjálfan sig sé ósköp gott og til marks um andlegt heilbrigði fremur en öfugt. Sjálfstal getur þó verið skaðlegt þegar menn taka til við brjóta sjálfa sig niður og draga þannig úr sér kjark og minnka stjálfstraust sitt.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







