Rispum ekki rúðurnar

Þráinn Þorvaldsson

Þráinn Þorvaldsson

Þráinn Þorvaldsson fyrrverandi framkvæmdastjóri skrifar

Undanfarið höfum við orðið vitni að óvenju hörðum ummælum milli fólks í fjölmiðlum. Þessi hörðu ummæli hafa farið fram á netinu og  á vettvangi stjórnmála jafnvel milli náinna samstarfsfélaga og almennri. Getum við sagt hvað sem er við samferðafólkið í lífinu? Við getum það en slíkt hefur afleiðingar.

Fyrir mörgum árum starfaði ég um tíma við ráðgjafastörf í stjórnun og markaðssetningu. Þar fékk ég m.a. til meðhöndlunar mál sem tengdust erfiðleikum í samskiptum fólks á vinnustöðum. Þessi hluti ráðgjafastarfanna urðu mér mikill lærdómur í mannlegum samskiptum.  Á þessum árum skrifaði ég pistla á vef Bústaðakirkju. Úr þessum pistlum og fleirum varð síðar hefti sem ég nefndi Gleðigjafann og Óskar Þór sonur minn setti í stafrænt form. Í tilefni þessarar beinskeyttu persónulegu umræðu í þjóðfélaginu langar mig til þess að birta sem pistil einn kafla úr Gleðigjafanum sem heitir Rispum ekki rúðurnar.

—————————-

Við  höfum  öll  reynt  það  að  verða  særð  vegna  einhvers sem  sagt  var  við  okkur  eða  haft eftir  einhverjum  um okkur.  Við  höfum  öll  einhvern  tíma  sært  aðra  þótt  við munum  síður  eftir  því  en  því  sem  aðrir  hafa  sært  okkur. Við verðum oft vitni að því þegar fólk að vanhugsuðu máli segir eitthvað særandi við og um samferðamenn sína og jafnvel fjölskyldu og vini. Í nokkur ár vann ég við fyrirtækjaráðgjöf. Ég tók að mér ýmis  verkefni  m.a.  endurskipulagningu  á  rekstri  fyrirtækja og  stofnana.  Í  mörgum  tilfellum  leiddust  verkefnin  inn  á svið  erfiðleika  í  mannlegum  samskiptum.  Víða  voru  árekstrar   og   spenna   milli   einstaklinga   og   oft   milli yfirmanna  og  undirmanna  sem  leiddi  til  margvíslegra vandamála  í  stjórnuninni.  Þegar  ég  fór  að  leita  orsaka  þessarar  spennu  reyndust  þær  vera  af  ýmsum  toga  spunnar. Einum  algengum  þætti  tók  ég  sérstaklega  eftir.  Þegar  ég spurði starfsfólkið um viðhorf til tiltekins samstarfsmanns eða  yfirmanns  þar  sem  spenna  var  í  milli  var  oft  sagt  að viðkomandi  líkaði ágætlega  við samstafsmanninn  utan tiltekins  atviks  sem  starfsmaðurinn  mundi  nákvæmlega hvenær  hafði átt  sér  stað  og  hvenær ákveðin  ummæli  voru við höfð. Svo kom nákvæm lýsing á því hvað hafði verið sagt  en  starfsmanninum  hafði  sárnað mjög  það  sem  sagt var  og  ekki  síst  hvernig  það  var  sagt.  Þegar  ég  ræddi  við einstaklinginn  sem  hafði  sært  samstarfsmann  sinn  mundi hann oft ekki eftir því eða sagðist alls ekki hafa meint það eins og viðkomandi túlkaði ummælin. Í augum hans var þetta lítilfjörlegt atvik sem ekki skipti neinu máli.

Samskiptum okkar við annað fólk  má líkja við að horfa til  þess  gegnum  gluggarúðu.  Þá  sem  við  þekkjum  ekki  og  höfum ekkert heyrt um sjáum við gegnum hreina og tæra rúðu.   Þegar   við   heyrum   um   viðkomandi   eða   kynnumst honum  litast rúðan. Hún  verður bjartari eða dekkri  eftir  því  hvort  ummæli  eða  kynni  leiða til fagurs  eða  niðrandi  viðhorfs  til  einstaklingsins.  Við sjáum  okkar  nánustu  sem okkur  þykir  vænt  um  í  gegnum  rúður  litaðar  hlýjum  og björtum  litum.  Þá  sem  við  elskum  sjáum  við  í  hlýjustu litunum.  Ef  við  hins  vegar  verðum  særð  samskiptasári  af samferðafólki  okkar  kemur  rispa  í  þessa  rúðu.  Rispurnar geta verið það  litlar að  við tökum ekki eftir  þeim  í  fyrstu en ef þeim fjölgar fara þær að sjást. Ef særindin eru mikil verða rispurnar djúpar. Við getum fægt glerið en rispurnar hverfa ekki.  Við  horfum  á   fólkið  umhverfis  okkur  gegnum   þessa samskiptarúðu. Við sjáum þá sem  hafa sært okkur alltaf  í gegnum rispaða glerið. Við eigum að fyrirgefa og gerum  það vonandi sem  oftast  en  rispan  eða  rispurnar  í  rúðunni standa samt eftir sem áður. Við þurfum ekki að særa aðra. Við  getum  komið  skoðunum  okkar  og  athugasemdum  á framfæri  við  aðra  og  um  aðra  án þess  að  gera  það  á  særandi  hátt.  Höldum  samskiptarúðunum  hreinum  og  litum þær hlýjum og björtum litum með því að laða fram hið jákvæða í samskiptum við aðra. Rispum ekki rúðurnar

 

Þráinn Þorvaldsson október 3, 2016 10:24