„Það er mikil vitundarvakning í gangi í kringum þetta“

Fataviðgerðir fyrr og nú verða til umræðu í kvöld, miðvikudagskvöldið 18. mars, á Borgarbókasafninu Gerðubergi, þegar Ragna S. Bjarnadóttir, lektor og fagstjóri við fatahönnunarbraut Listaháskóla Íslands, flytur þar áhugavert erindi.

Áður fyrr voru fataviðgerðir nauðsynlegar þar sem textíll var dýr og af skornum skammti. Í dag er raunin önnur – eða hvað? Þessu og fleiru ætlar Ragna S. Bjarnadóttir, lektor og fagstjóri við fatahönnunarbraut Listaháskóla Íslands, að velta fyrir sér í fróðlegu erindi sem hún flytur á Borgarbókasafninu Gerðubergi annað kvöld kl. 19:30.

Yfirskrift erindisins Fötin sem við gerum við eru fötin sem skipta máli en í því mun Ragna fjalla um fatagerðir, skapandi fataviðgerðir, ósýnilegar viðgerðir og tilfinningarnar og virðið sem liggur í sumum flíkunum okkar. „Það er mikil vitundarvakning í gangi í kringum þetta,“ bendir Ragna á, „og fullt af fólki sem hefur áhuga að gera betur.“

Erindið er hluti af nýrri og spennandi viðburðaröð sem hefur hafið göngu á Borgarbókasafninu Gerðubergi, þar sem fatnaður, textíll, ábyrgari neysla og hringrásarhagkerfið verða meðal annars í brennidepli. Viðburðaröðin er í umsjón Rögnu og haldin í samstarfi við Listaháskóla Íslands.

Að erindi loknu gefst viðstöddum kostur á að spyrja spurninga og ræða efnið frekar.

Ókeypis er inn á viðburðinn og eru öll hjartanlega velkomin.

Nánar á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbokasafn.is

Nánari upplýsingar veitir:

Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri Gerðubergi

ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is | 411 6170

Nánar á heimasíðu Borgarbókasafnsins:

www.borgarbokasafn.is