Á vefnum hjartalif.is er að finna margskonar upplýsingar og svör við algengum spurningum. Sem dæmi má nefna spurninguna um hvaða kolvetni séu góð og hver slæm. Mikil áhersla er lögn á neyslu góðra kolvetna en láta hin vera. Sum kolvetnin keyri blóðsykurinn nefnilega upp en önnur ekki. Okkur er sagt að kolvetna- og sykurát sé aðalorsök offitu á vesturlöndum en um leið er okkur sagt að æskilegt sé að fá meira en helming daglegrar orku úr kolvetnum.
Mikilvægur orkugjafi
Kolvetni eru mikilvægur orkugjafi hjá allflestum en Lýðheilsustöð mælir með því að við fáum 60% af heildarorku í formi kolvetna. Þau eru þó ekki öll eins. Sum hækka blóðsykurinn hratt og mikið og í kjölfarið getur blóðsykur lækkað snögglega og jafnvel farið niður fyrir eðlileg gildi. Þessi kolvetni hafa háan sykurstuðul á meðan önnur kolvetni hækka blóðsykur ekki eins hratt eða mikið og hafa því lágan sykurstuðul.
Hér sést sykurstuðull ýmissa fæðutegunda:
Hátt:
o Bakaðar kartöflur 85
o Corn flakes 81
o Vöfflur 76
o Kleinuhringur 76
o Kartöfluflögur 75
o Hveitibrauð 73
o Rúsínur 64
o Rjómaís 61
Meðalhátt:
o Ananas 59
o Haframjöl 58
o Soðnar kartöflur 56
o Mangó 56
o Hvít hrísgrjón 56
o Poppkorn 55
o Sætar kartöflur 54
o Sykurmaís 53
o Kíví 53
o Bananar 52
o Grænar baunir 48
o Gulrætur 47
o Makkarónur 47
o Greipaldin 46
Lágt:
o Appelsínur 44
o Spagettí 42
o Epli 38
o Undanrenna 32
o Þurrkaðar apríkósur 31
o Linsubaunir 29
o Bygg 25
o Agúrka 15
o Spergilkál 15
o Eggaldin 15
o Paprika 15
o Tómatar 15
o Spínat 15
Slæm kolvetni
Sumir sérfræðingar hafa kallað kolvetni sem hækka blóðsykur hratt og mikið slæm kolvetni. Þessi kolvetni örva insulínframleiðslu mikið sem hvetur líkamann til þess að geyma orku í formi fitu. Þessi kolvetni eru því talin ýta undir offitu í meira mæli en kolvetni sem ekki valda jafn snöggri og mikilli hækkun á blóðsykri. Síðarnefndu kolvetnin eru því gjarnan kölluð góð kolvetni.
Í töflunni hér að ofan sérðu sykurstuðul ýmissa fæðutegunda. Ýmislegt annað en kolvetnagerðin hefur áhrif á sykurstuðulinn. Þannig hefur eldunarmátinn og hlutfall fitu og trefja áhrif. Taktu t.d. eftir því að bakaðar kartöflur hafa talsvert hærri sykurstuðul en soðnar kartöflur. Ástæðan fyrir því að rjómaís hefur ekki hærri sykurstuðul en raun ber vitni er að hann inniheldur fitu sem hægir á frásogi sykurs frá meltingarveginum sem veldur því að blóðsykur hækkar ekki eins skart. Heilkornavörur hafa að jafnaði lágan sykurstuðul vegna hás trefjamagns.
Almennt er talið að fæða með lágan sykurstuðul sé hollari en fæða með háan sykurstuðul. Mataræði sem leggur áherslu á fæðu með lágan sykurstuðul getur lækkað hættuna á sykursýki af tegund 2 og bætt sykurstjórnun hjá þeim sem hafa sykursýki. Fæða með lágan sykurstuðul er líklegri til að hækka HDL-kólesteról (“góða kólesterólið) og getur jafnvel dregið úr hættu á hjartaáföllum. Rannsóknir benda einnig til þess að mataræði sem samanstendur af lítilli fitu og miklum kolvetnum sé líklegra til að draga úr offitu ef það inniheldur kolvetni með lágan sykurstuðul.
Veldu því fremur góð kolvetni en slæm. Borðaðu frekar agúrkur, epli, gulrætur og banana en kartöflur, kleinuhringi og hveitibrauð. Hljómar ekki nema sjálfsagt, eða hvað!!
Upplýsingarnar eru úr smiðju Axels F. Sigurðssonar hjartalæknis á Hjartamiðstöðinni en hann heldur úti vefsíðunni docsopinion.com