Félagsmálaráðherra býr til rými fyrir ný hjúkrunarrými

Nýtt og glæsilegt 87 rýma hjúkrunarheimili verður opnað við Nauthólsveg í Reykjavík. Hjúkrunarheimilið verður í byggingu sem áður hýsti skrifstofur Icelandair við Nauthólsveg 50 og verður ráðist í gagngerar endurbætur á húsnæðinu og því umbreytt til þess að sinna nýju hlutverki. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita fasteignafélags, hófu framkvæmdirnar í dag með því að brjóta niður vegg sem þurfti að víkja við endurbæturnar.

„Verulega tímabært var að hefja fyrir alvöru uppbyggingu hjúkrunarheimila á Íslandi og nú er verkið hafið. Málefni eldra fólks eru mér hjartans mál og hafa verið það lengi og nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið. Ég er afar stolt í dag,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Nýja hjúkrunarheimilið verður ríflega 6.500 fermetrar og öll herbergin einbýli með baðherbergjum. Reitir eiga fasteignina en ríkið leigir húsið með leigusamningi til 20 ára.

„Umbreyting Nauthólsvegar 50 í hjúkrunarheimili er liður í stefnu Reita um uppbyggingu mikilvægra innviða fyrir samfélagið. Breytt aldurssamsetning og öldrun þjóðar kallar á verulega aukningu hjúkrunarrýma og með þessu verkefni svörum við kallinu um innviði sem skipta sköpum fyrir velferð og heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.

Arkís arkitektar sjá um hönnun hússins og verður meðal annars lögð áhersla á þarfir og velferð íbúa og starfsfólks, aðgengi fyrir alla og góða innivist. Þá verður útigarður hannaður þannig að í honum myndist skjólgott og sólríkt útivistar- og dvalarsvæði.

Staðsetningin hentar einstaklega vel fyrir starfsemi hjúkrunarheimilis, í nánd við Landspítalann, miðbæ Reykjavíkur og útivistarsvæði á borð við Öskjuhlíð og Nauthólsvík.

Öllum hindrunum í vegi fyrir farsælli öldrunarþjónustu á Íslandi skal rutt úr vegi.

Bætt þjónusta við eldra fólk

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er áhersla lögð á málefni eldra fólks, þar á meðal fjölgun hjúkrunarrýma.

Þann 19. mars síðastliðinn var tilkynnt að samkomulag væri í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Í apríl kom fram að ráðgert er að taka í notkun 120 hjúkrunarrými á þessu ári og afla 600 nýrra hjúkrunarrýma á árunum 2026-2028.

Í byrjun maí tók félags- og húsnæðismálaráðherra fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði og í dag mundaði hún sem fyrr segir sleggjuna við Nauthólsveg. Á næstu vikum stendur til að undirrita samkomulag við nokkur sveitarfélög um lóðir fyrir ný hjúkrunarheimili.

Ritstjórn maí 16, 2025 16:02