Spyr ráðherra um aldurstengda mismunun

Birgitta Jónsdóttir

Birgitta Jónsdóttir

Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra telur mikilvægt að skerpa á þeim úrræðum sem launafólk á innlendum vinnumarkaði hefur til að leita réttar síns, telji það á sér brotið í starfi vegna aldurs, þetta kemur fram í skriflegu svari ráðherrans á Alþingi við fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur, pírata. Birgitta spurði ráðherrann hvort að hann teldi þörf á að bregðast á einhvern hátt við aldurstengdri mismunun á vinnumarkaði? Ef svo væri, hvernig hann hyggðist þá bregðast við?

Að koma í veg fyrir manngreinarálit

Í svari ráðherrans segir að bann við mismunun sé að finna í 65. grein stjórnarskrárinnar og þá grein beri ávallt að hafa að leiðarljósi. Raunar sé greinin orðuð mjög rúmt, en þrátt fyrir það eigi hún þó að veita öllum jafna lagavernd. Það hafi verið talið að reglan sé öðrum þræði stefnuyfirlýsing sem varasamt sé að taka of bókstaflega án tillits til aðstæðna sem geti réttlætt eðlileg frávik frá þessu jafnræði fyrir lögunum. Markmið jafnræðisreglunnar sé framar öllu að koma í veg fyrir manngreinarálit.

Frumvarp í farvatninu

Eygló Harðardóttir

Eygló Harðardóttir

„Verður því að ætla að almennt sé óheimilt að mismuna á vinnumarkaði sem og á öðrum sviðum samfélagsins á grundvelli aldurs. Engu síður kunna að vera fyrir hendi frávik frá banni við mismunandi meðferð á grundvelli aldurs, séu færð fyrir því málefnaleg rök sem helgast af lögmætu markmiði og að ekki sé gengið lengra en nauðsynlegt er til að ná tilsettu markmiði.
Mikilvægt er hins vegar að skerpa á þeim úrræðum sem launafólk á innlendum vinnumarkaði hefur til að leita réttar síns telji það á sér brotið í starfi vegna aldurs þeirra. Ráðherra stefnir því að því að leggja fram á yfirstandandi þingi frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði en frumvarpið mun meðal annars fjalla um bann við mismunun á vinnumarkaði, svo sem vegna aldurs,“ segir ennfremur í svari ráðherrans.

Ritstjórn febrúar 25, 2015 13:30