Flestir vilja halda í sjálfstæða búsetu sem allra lengst og helst vill fólk vera áfram á því heimili sem það hefur kosið sér. Hægt er að gera ýmislegt til þess að tryggja að það henti þótt ýmsir kvillar kunni að hrjá fólk. Því fyrr sem fasteignaeigendur hella sér í þær breytingar sem gera þarf því betra.
Byrjaðu á að skapa gott aðgengi að útidyrunum. Breikkaðu gangstíginn að húsinu, lagaðu tröppurnar og tryggðu gott handrið ef tröppur liggja að dyrunum. Komdu fyrir dyrabjöllu með myndavél. Að vita hver er fyrir utan er öryggisatriði og ýmsir hringja bjöllunni sem við kærum okkur ekki um að taka á móti.
Að búa á einni hæð er alltaf kostur. Með árunum getur orðið erfiðara að fara upp og niður stiga, fólk á erfiðara með að hreyfa sig, sumir finna fyrir svima þegar þeir eru að ganga niður á við og aðrir eru óstöðugir á fótunum. Ef húsnæði þitt er á tveimur hæðum veltu fyrir þér hvort hægt sé að útbúa svefnherbergi með baðherbergi á neðri hæðinni. Sé það ekki hægt er vert að skoða hvort hægt sé að koma fyrir léttri lyftu upp stigann. Hana má líka nota til að koma þungum hlutum upp á efri hæðina. Það er líka góð hugmynd að fjarlægja alla þröskulda.
Góð gólfefni lykilatriði
Gólfefni skipta einnig miklu máli. Flísar og parket hafa þann kost að auðvelt er að þrífa en gólfin eru hál. Í dag er hægt að fá stamari flísar og parket og eldra fólk ætti skoða þá kosti sem eru í boði.
Eitt af því sem fólk hugsar sjaldnast um er lýsing. Sjónin versnar með árunum og þá þarf að huga að því að næg og góð lýsing sé inni á heimilinu. Í sumum tilfellum nægir að skipta út perum en í öðrum er betra að bæta við ljósum. Skoðaðu einnig staðsetningu innstunga. Þegar fólk eldist er erfiðara að beygja sig niður til að stinga tækjum í samband eða taka þau úr sambandi. Algengt er að fólk fái svima við að beygja sig niður og standa upp og þá er hætta á að detta. Margir láta færa nokkrar innstungur ofar á veggina og kjósa að nota þær eingöngu.
Baðherbergið er alversti slysastaður heimilisins. Þar detta flestir, reka sig illa í eða slasa sig á annan hátt. Mottur á baðherbergi þegar fólk er orðið fullorðið eru ekki góð hugmynd nema þær séu tryggilega festar. Stórar sturtur sem hægt er að ganga beint inn í eru dásamlegur lúxus en líka nauðsynlegar þegar fólk fer að eldast. Ótal óhöpp og slys gerast þegar fólk er að fara upp úr baðinu eða stíga út úr sturtunni. Því fyrr sem fólk tekur baðherbergið í gegn og skiptir út baðkari fyrir góða sturtu því betra. Koma má fyrir stól í sturtunni og handriði á veggnum til að grípa í. Margir kjósa einnig að hækka klósettið á veggnum svo auðveldara sé að standa á fætur og svokölluð snjallklósett verða sífellt vinsælli. Þau sjá um að þrífa fólk að neðan eftir að það hefur lokið sér af. Baðherbergisflísarnar eru líka mikilvægar það ætti alltaf að velja þær með tilliti til hversu hálar þær eru.
Því fyrr því betra
Eldhúsið er næst hættulegasti staður heimilisins, kemur fast á hæla baðherbergisins. Skúffur eru mun heppilegri en skápar með tilliti til slysahættu. Mörg slys verða þegar fólk er að reyna að ná í eitthvað úr efri skápum, að teygja sig inn í skápinn til að ná í eitthvað aftast í honum eða að reisa sig upp og rekast í opna skáphurð. Skúffur eru ekki hættulausar en ólíklegra er að fólk detti við að teygja sig ofan í skúffu. Í IKEA er hægt að fá ledljósaborða sem líma má inn í skápa og skúffur og lýsa þar með upp það sem leynist þar. Glerhurðir á efri skápum eru einnig góðar því þá er minni hætta á að fólk fari að klifra upp á stóla til að kíkja eftir hvað er í efstu hillunni. Eldavélin og ofninn eru líka slysagildrur en þar gildir að umgangast þessi tæki ætíð af varúð. Nota ofnhanska, fara varlega þegar heitir pottar eru teknir af hellum og gæta þess að slökkva á þeim eftir notkun. Margir nútímaofna or eldavélar eru útbúin með ljósum sem loga meðan enn er hiti á hellum eða inni í ofninum.
Garður er yndisleg viðbót við íbúðarhúsnæði og margir njóta þess að stunda garðyrkju langt fram eftir aldri. Gott aðgengi þarf að vera að garðinum og ef þarf að ganga niður tröppur til að komast þangað gæta þess að þær séu vel merktar og skýrar. Eins er gott að fylgjast vel með hellum og jafna þær ef þær eru teknar að skekkjast. Í dag er hægt að fá létt og þægileg garðverkfæri, sláttuvélaróbóta og rafmagnsklippur sem auðvelda verkin.
En hvers vegna er svona mikilvægt að huga að þessu fyrr en síðar? Jú, vegna þess að minnið versnar með árunum og sumir fá sjúkdóma á borð við elliglöp og alzheimers. Þá getur munað öllu að gjörþekkja heimili sitt, vera búin að festa það svo rækilega í minninu að fólk rati um þótt minnið sé farið að verða gloppótt. Allir geta líka orðið fyrir óhappi, dottið og beinbrotnað eða snúið sig illa og þá er gott að búa á heimili sem auðvelt er að ganga um með hjálpartæki á borð við hækjur og göngugrind.







