Skáldkonurnar Draumey Aradóttir og Melkorka Ólafsdóttir senda báðar frá sér ljóðabók í ár. Þær eiga það sameiginlegt að vera báðar myndskreyttar af höfundunum sjálfum og lýsa umbreytingu eða þroskaferli hvor á sinn hátt.
Hljóðheimur skógarins
Það þarf hugrekki til að horfa inn í eigin skugga, mæta óttanum, sleppa tökunum og treysta. Draumey Aradóttir hefur nægilega djörfung til að gera einmitt þetta og hún hélt inn í regnskóga Perú, inn í myrkviði skógarins til að leggja upp í ferðalag inn í frumskóga sjálfsins undir leiðsögn shamana. syngur í skógi segir sögu þessarar vegferðar í ljóðum.
Og þvílík ljóð, orðkyngi, magnaðar myndir og lifandi frásögn. Lesandinn lifir sig inn í reynslu ljóðmælandans og hrífst með. Skógurinn með sín framandi hljóð, ilm og þöglu nærveru, söngur shamananna og vitund konunnar sem ákveður að kafa til botns.
Dýrin, blómin, vatn og hljóðin í skóginum eru gegnum gangandi þema í gegnum bókina og opna ímyndunaraflinu leið að framandi hljóðheimum.
„sitjum hljóð í ilmskýi reykelsis
og hlustum hvert á annars andardrátt
utan mýnetsins frumort sinfónía framandi hljóða
fjallaljón urrar
krókódíll rymur
jagúar gnýr“
Og það er ekki laust við að manni finnist maður heyra söng skógarins.
„það syngur allt sinn söng
lífið í skóginum
hvert með sínu hljóðfalli
hvert með sínum blæ“
Þetta er áhrifamikil ljóðabók og Draumey heldur áfram að vefa mynstur úr orðum, skapa heildstæðan og litríkan vef þar sem hægt að er að njóta, upplifa og fá innsýn inn í ótrúleg ferðalög á vit sjálfsins, sálarinnar eða eigin vitundar allt eftir því hvað við viljum kalla það. Hún hikar ekki við að draga upp neikvæðar hliðar ayahuasca-seyðisins sem og hvernig þær myndir sem birtast geta opnað og aukið skilning á eigin áföllum. Draumey myndskreytir bókina sjálf og myndirnar gefa ljóðunum aukna vídd og auka á fegurð bókarinnar.
Hverfa, endurfæðast, endurkastast og hverfast um
Hverfa eftir Melkorku Ólafsdóttur er listavel unnin ljóð. Uppbyggingin er úthugsuð og myndirnar óhemju fallegar. Það er einstakt hvernig henni tekst að tengja saman öfl í eðlisfræði alheimsins og tengsl, samskipti og tilfinningalíf manneskna.
Melkorka leikur sér með orðið hverfa, sem getur vísað til að eitthvað hverfi, fari úr vitund okkar og umhverfi en hverfur samt alls ekki að fullu, hlutirnir geta líka hverfst um eitthvað, umvafið viðfangsefni, tilfinningar, fyrirbæri, manneskjur og öðlast þannig merkingu og mikilvægi. Nú og svo er það samhverfan, þegar eitthvað rennur saman eða í sundur en skapar tvo eins vatnsdropa, blóðdropa, frumur eða ljós. Allt endurkastast einhvern veginn aftur til okkar þótt við reynum að láta það hverfa. Tíminn er hér einnig til skoðunar hvernig hann hverfur en skilur samt eftir sig andblæ liðinna daga og minningu um snertingu.
„Minning um fingurgóma
kaffi með rjóma
æsku og elli
saman við borð“
Melkorka er frábært skáld og síðasta ljóðabók hennar Flagasól var sérlega falleg og vel unnin. Þessi er ekki síðri þótt hún sé ekki eins ríkulega myndskreytt.
„Við nefnum eitthvað
og samstundis hverfur það
nánast að fullu“
Það er svo margt umhugsunarvert og vekjandi í þessari bók, einkum lokakaflinn Entrópía þar er fjallað um umbreytingu, hugsanlega endurfæðingu og með undirritaðri vöknuðu hugrenningatengsl við Alice Through the Looking Glass eftir Lewis Carroll. Einhver tilfinning um að þroski væri að eiga sér stað, ný sýn á lífið og einhvers konar ferðalag manneskjunnar fram á við.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







