Hvernig verður ævintýraheimur Dr. Seuss að lifandi leiksýningu? Þriðjudaginn 20. október gefst áhugasömum tækifæri til að skyggnast á bak við tjöldin í Borgarleikhúsinu þegar söngleikurinn Þegar Trölli stal jólunum! verður til umræðu á leikhúskaffi á Borgarbókasafninu Kringlunni.
Viðburðurinn hefst kl. 17:30 í Borgarbókasafninu Kringlunni þar sem Valur Freyr Einarsson leikstjóri segir frá söngleiknum og uppsetningu hans. Að því loknu verður haldið yfir í Borgarleikhúsið þar sem þátttakendur fá að skoða leikmyndina á Stóra sviðinu og fræðast nánar um sýninguna. Einnig gefst tækifæri til að spyrja spurninga og ræða við leikstjórann.
Söngleikurinn Þegar Trölli stal jólunum! verður frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins 7. nóvember næstkomandi. Sýningin byggir á sígildri sögu Dr. Seuss þar sem þorpið Hvervík lifnar við og umbreytist í jólaþorp í ævintýralegri sviðsmynd, grípandi tónlist og litríkum persónum.
Leikhúskaffi er viðburðaröð á vegum Borgarbókasafnsins Kringlunni og Borgarleikhússins þar sem áhugafólki um leikhús gefst tækifæri til að kynnast leikhúslistinni frá áhugaverðu sjónarhorni.
Gestum leikhúskaffis býðst 10% afsláttur af miðaverði á sýninguna.
Hjólastólaaðgengi er á viðburðinum, sem fer fram milli kl. 17:30–18:30.
Öll hjartanlega velkomin!







