Guðmundur Pétursson, gítarleikari, snýr aftur í gamla hverfið sitt og heldur tónleika á Borgarbókasafninu Gerðubergi, laugardaginn 12. september kl. 15:00-16:00. Hann bjó í Breiðholtinu á unglingsárum sínum og ber sterkar taugar til hverfisins.
Á tónleikunum verður Guðmundur einn með gítarinn og býður áheyrendum inn í sinn einstaka tónlistarheim. Hann flytur eigin tónsmíðar, blúslög og valin verk af plötum sínum, meðal annars af plötunni Wandering Beings sem hann hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir árið 2024.
Guðmundur er löngu þjóðþekktur tónlistarmaður og er einn fremsti gítarleikari landsins. Hann hefur leikið með ótal íslensku og erlendu tónlistarfólki og tekið þátt í margvíslegum verkefnum innanlands sem utan.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin á með húsrúm leyfir.Bre







