María Reyndal segir frá sýningunni Svikasögur á Leikhúskaffi á Borgarbókasafninu Kringlunni 1. september frá kl. 17:30-18:30.
Leiksýningin Svikasögur eftir Maríu Reyndal verður frumsýnd bráðlega á Stóra sviði Borgarleikhússins. María Reyndal er þekkt fyrir bráðfyndin og mannleg verk á borð við Er ég mamma mín og Með guð í vasanum. Í Svikasögum tekst hún á við hjónaskilnað og rof í kjarnafjölskyldunni með húmorinn og hlýjuna að vopni.
Leikhúskaffið er skemmtilegur viðburður, haldinn er í samstarfi við Borgarleikhúsið fyrir öll sem hafa áhuga á leikhúsi og hefst á Borgarbókasafninu Kringlunni þar sem leikstjórinn María Reyndal segir frá sýningunni, nálgun sinni á verkið og aðferðafræði.
Í kjölfarið verður farið samferða yfir á Stóra svið Borgarleikhússins þar sem leikmyndin, sem hönnuð er af Evu Signýju Berger, verður skoðuð og boðið upp á umræður og spurningar fyrir áhugasama.
Gestum leikhúskaffis býðst 10% afsláttur af miðaverði á sýninguna.
Aðgangur ókeypis. Hjólastólaaðgengi er á viðburðinum.
Öll eru hjartanlega velkomin!
Um sýninguna:
Svikasögur, glænýtt verk eftir Maríu Reyndal, verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins í september næstkomandi. María hefur á undanförnum árum sett upp tvö verk í Borgarleikhúsinu - Er ég mamma mín? og Með Guð í vasanum, sem báðar fengu frábæra gagnrýni og viðtökur leikhúsgesta.
Svikasögur gerast að mestu árið 1984 og stendur Nanna á hinum ómótstæðilegu og óbærilegu mörkum þess að vera barn og unglingur. Hún er líka milli tveggja elda þegar foreldrar hennar takast á og toga hana í ólíkar áttir. Hvernig er hægt að treysta fullorðnu fólki sem segir eitt en gerir annað? Hvort er raunverulega verra, að stela sígarettum eða halda framhjá?
María er þekkt fyrir bráðfyndin og mannleg verk sín og óhætt er að búast við hlátrasköllum í bland við hjartaskerandi andartök. Með húmorinn og hlýjuna að vopni tekst María Reyndal á við hjónaskilnað og rof í kjarnafjölskyldunni í þessu nýja verki.
María mun leiða magnaðan leikhóp með Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur, Berglindi Öldu Ástþórsdóttur, Vilhelm Neto, Birnu Pétursdóttur, Hákoni Jóhannessyni, Mikael Kaaber og Viktoríu Dalitso Þráinsdóttur, auk hinnar 13 ára Rebeccu Lív Biraghi sem mun fara með burðarhlutverk.







