Við sem lesum vitum hversu heilandi lestur er. Bækur gleðja okkur, vekja reiði, skilja okkur eftir sorgmædd, opna innsýn inn í líðan annarra og aðra menningarheima, skemmta okkur en umfram allt veita frí frá hversdeginu. Hver sá sem opnar bók og byrjar að lesa er þar með horfinn inn í heim bókarinnar og fær hvíld frá sínum eigin.
Bandaríski rithöfundurinn Kurt Vonnegut sagði frá því í viðtali að í sorginni eftir andlát sonar síns hafi honum verið ráðlagt að byrja að stunda hugleiðslu. Hann leitaði til sérfræðings og bað um leiðbeiningar um hvernig ætti að hefja þá ástundun. En fyrst spurði hann hvað hugleiðslan myndi gera fyrir hann. Hann fékk svarið að í djúpri hugleiðslu hyrfi fólk litla stund frá eigin áhyggjum og sorgum inn í heim slökunar og vellíðunar. „Ég áttaði mig á að hann var að lýsa því sem ég upplifði í hvert sinn sem ég les bók,“ sagði Kurt þá. En hvort sem þú ert meðvituð/aður um heilunarmátt bóka eða ekki ættir þú að leggja leið þín í Borgarbókasafnið í Gerðubergi í næstu viku. Af hverju jú, von er á spennandi gesti, breska rithöfundinum og bókameðferðarfræðingnum Bijal Shah, sem ætlar að deila með okkur þekkingu sinni á bókameðferð og áhrifum lesturs og bókmennta á geðrækt og vellíðan.
Bókameðferð ryður sér til rúms á Íslandi
Breski bókameðferðarfræðingurinn og rithöfundurinn Bijal Shah kemur til Íslands í október á vegum Borgarbókasafnsins og Bókmenntaskólans og heldur vinnustofur og opinn fyrirlestur um bókameðferð og áhrif lesturs og bókmennta á geðrækt og vellíðan. Heimsóknin er liður í að efla þekkingu á bókameðferð og möguleikum hennar hér á landi.
Bókameðferð (e. bibliotherapy) byggir á þeirri hugmynd að bækur og lestur geti hjálpað fólki að skilja eigin reynslu, nefna tilfinningar og vinna úr þeim, auk þess að sjá aðstæður sínar í nýju ljósi. Aðferðin á sér langa sögu og er í dag nýtt á fjölbreyttan hátt á sviðum geðheilbrigðis, menntunar og vellíðunar.
„Í sinni einföldustu mynd er bókameðferð markviss notkun bókmennta til að styðja við bata, sjálfsskilning og persónulegan þroska. Hún nýtir til dæmis skáldverk, fræðibækur, endurminningar, ljóð, goðsögur, ritgerðir eða önnur frásagnarform,“ segir breski bókameðferðarfræðingurinn og rithöfundurinn Bijal Shah, sem ætlar í október að halda vinnustofur á Íslandi og opinn fyrirlestur um bókameðferð og áhrif lesturs og bókmennta á geðrækt og vellíðan.
Bijal Shah er brautryðjandi á sviði bókameðferðar og höfundur bókarinnar Bibliotherapy: The Healing Power of Reading. Hún er einnig stofnandi Book Therapy, vettvangs sem helgaður er tilfinningalegum og sálrænum áhrifum bókmennta. Hún vinnur með einstaklingum, skólum og stofnunum m.a. á sviði heilbrigðisþjónustu. Skrif hennar og bókmenntaráðleggingar hafa meðal annars birst í The Guardian, BBC Culture, Marie Claire og Good Housekeeping.
Á vinnustofunni Bókameðferð, bókmenntir og geðheilbrigði kynnir Bijal Shah bæði fræðilegan grunn og hagnýtar aðferðir við að nýta bókmenntir til ígrundunar, samtals og tengslamyndunar. Hægt er að velja um tvær dagsetningar, annars vegar mánudaginn 26. og hins vegar þriðjudaginn 27. október, kl. 9-16. Farið er yfir sama efni báða dagana. Vinnustofan er haldin í Borgarbókasafninu Gerðubergi. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður í vinnustofuna og því er nauðsynlegt að skrá sig í gegnum heimasíðu Borgarbókasafnsins. Vinnustofan fer fram á ensku og er ókeypis.
„Markmiðið er ekki að gera bókasafnsfræðinga eða kennara að meðferðaraðilum,“ segir Bijal, „heldur hjálpa þeim að nýta bókmenntir á meðvitaðri og markvissari hátt í þeim hlutverkum sem þeir gegna þegar.“
Miðvikudaginn 28. október kl. 17–18 heldur Bijal svo opinn fyrirlestur í Borgarbókasafninu Grófinni, Tryggvagötu 15, undir yfirskriftinni Lækningamáttur bóka – kynning á bókameðferð. Þar fjallar hún um sögu bókameðferðar og hvernig lestur getur stutt við geðrækt, samkennd, ígrundun og seiglu í daglegu lífi.
Í framhaldi af komu Bijal til landsins verða sérfræðingar Bókmenntaskólans, Esther Ágústsdóttir, bókmenntafræðingur og kennari og Elín Bergsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, félagsfræðingur og ljóðskáld með mánaðarlegar vinnustofur á Borgarbókasafninu Grófinni þar sem unnið verður út frá aðferðum bókameðferðar.
Allir viðburðirnir eru ókeypis.







