Sjalagleði í tilefni af árlegu leyni-sjalasamprjóni Stephen West

Hitað upp fyrir leyni-sjalasamprjón hins þekkta prjónahönnuðar Stephen West með Textíl Barnum

Auglýsing

Þær Hrafnhildur og Hildigunnur hjá Textíl Barnum taka vel á móti prjónurum, sem ætla að taka þátt í hinu árlega sjalasamprjóni Stephen West, á Borgarbókasafninu Gerðubergi laugardaginn 3. október frá kl. 14:30 – 16:30.

Samprjónið hefst formlega 1. október og virkar þannig að í hverri viku, í 4 vikur, er gefin út vísbending eða partur af prjónauppskrift. Þátttakendur vita því ekki í upphafi hvernig lokaútkoma sjalsins verður. Það verður því skemmtilegt að fylgjast með framvindunni hjá prjónurum út um allan heim, ekki síst hinum ýmsu litasamsetningum sjalanna.

Til að fanga lita- og sköpunargleðina verður boðið til sjalagleði í Gerðubergi og eru allir prjónarar sem ætla að vera með í samprjóninu í ár hvattir til að mæta og eiga saman sprúðlandi prjónastund. Þá er tilvalið að nýta garnafganga í anda Textíl Barsins en samprjónssjalið er einmitt í 8 litum í ár og henta afgangar því fullkomlega í verkefnið.

Textíl Barinn er hönnunarstúdíó þar sem tvíeykið Hildigunnur og Hrafnhildur standa vaktina. Þær sérhæfa sig í því að gefa áður elskuðum textíl nýtt líf með endurvinnslu og endurhönnun.

Hér er hægt að kynna sér samprjónssjal Stephen West.

Borgarbókasafnið tekur þátt í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna

neytendur með áherslu á endurnýtingu textíls. Verkefnið er styrkt af New Horizons sjóði Evrópusambandsins.

Sjá viðburð á heimasíðu Borgarbókasafnsins.