Borgar sig að taka leigubíla og losa sig við bílinn?

Björn Berg Gunnarsson deildarstjóri Greiningar og fræðslu í Íslandsbanka hefur verið manna ötluastur við að fjalla um fjármál eldri kynslóðarinnar. Hann hefur gert samanburð á því, hvað kostar að reka eigin bíl, á móti því að taka leigubíla og skrifaði grein um það á Vísisvefinn, Að leggja bílnum á lífeyrisaldri er fyrirsögn greinarinnar og  þar segir m.a.

Það getur verið æði kostnaðarsamt að eiga og reka bíl. Auk þess getur komið sá tími að við treystum okkur ekki eða kjósum síður að keyra sjálf og viljum skoða aðra fararmáta. En hvað kostar þetta allt saman? Er ekki allt of dýrt að skipta bílnum út fyrir leigubílaferðir eða gæti það verið raunhæfur kostur?

Björn birtir í greinni kostnaðinn við að taka tiltekinn fjölda leigubíla í viku hverri. Þannig kostar það 702.000 krónur á ári að taka leigubíl þrisvar í viku, en 1.170.000 að taka leigubíl fimm sinnum í viku.  Nánari upplýsingar og útreikninga Björns í heild má sjá hér.  Síðan segir hann.

Til samanburðar hefur Félag íslenskra bifreiðaeigenda um árabil tekið saman dæmi um rekstrarkostnað eigin bifreiðar. Samkvæmt áætlun þeirra fyrir árið 2020 kostar tæpar 1,4 milljónir króna að eiga og reka 3,6 milljóna króna bíl og keyra hann 15.000 kílómetra á ári. Inni í þeirri tölu er verðlækkun bílsins, eldsneyti, tryggingar, dekk, skoðun og fleira. Ef við berum þann kostnað saman við notkun leigubíls sést að kannski er leigubíllinn raunhæfari kostur en halda mætti við fyrstu sýn og gæti jafnvel verið ódýrari en rekstur eigin bíls. Í þeim tilvikum sem lífeyrisþegum bjóðast afsláttarkjör á þjónustu leigubílastöðva eykst sparnaðurinn enn frekar.

Hann bendir líka á aðra kosti í stöðunni.

En hvað með að nýta fleiri en einn valkost? Sé gott aðgengi að strætóstoppistöð og veðrið skaplegt má svo sannarlega nýta sér þá þjónustu sem oftast. Árskort fyrir 67 ára og eldri kostar einungis 23.200 krónur og getur notkun strætisvagna dregið stórlega úr samgöngukostnaði heimilisins.

Þar að auki hafa svokallaðir Zipbílar hafið innreið sína á íslenskan markað, en nálgast má slíka bíla á bílastæðum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið og greiða klukkutímagjald fyrir notkun þeirra, auk mánaðargjalds. Sé slíkur bíll leigður 5 daga vikunnar í 90 mínútur í senn er heildarkostnaðurinn um hálf milljón króna á ári, sem líklegt er að sé talsvert undir rekstrarkostnaði hins hefðbundna fjölskyldubíls.

Með blandaðri notkun fararskjóta sem henta tilefni, veðri, efnum og hentisemi má svo sannarlega láta á það reyna hvort hægt sé að spara einhverja fjármuni og jafnvel láta aðra um aksturinn og láta fara vel um sig.

Ritstjórn júlí 28, 2020 07:24