Einar Benediktsson er ekki eina íslenska skáldið sem hefur mært áhrifamátt orða og tungumálsins. Hann sagði að móðir sín hefði kennt sér „að á Íslandi orð er til um allt sem er hugsað á jörðu“ en benti líka á að „þel getur snúist við atorð eitt“ og margan því iðrast að hafa látið þau orð falla. Já, orðin eru okkar beittasta vopn og sætasta svölun. Það vita ljóðskáldin og þau senda mörg frá sér frábærar bækur fyrir þessi jól.
Í Neðarsjávarbásúnunni dregur Einar Randversson upp myndir úr hversdagsleikanum. Fólk, tónlist, hús, tengsl og snerting eru í forgrunni. Höfundur fetar sig gegnum nokkur æviskeið og tekst að varpa ljósi á umrót hugans og kyrralíf hvers aldurstímabils fyrir sig. Þetta eru áhugaverð ljóð og bókin vel til þess fallin að lesa til þegar þarf að minna sig á fegurðina í hversdagsleikanum og mannlífinu.
Harmurinn í hlátrinum byggir á minningum Hildar Eirar Bolladóttur um foreldra sína. Hún nær að snerta marga strengi í hjarta lesandans og lýsa ekki bara ástinni milli foreldra og barna þeirra í þessum mögnuðu ljóðum heldur einnig persónunum sem um ræðir. Mamma Hildar var augljóslega ótrúlegur dugnaðarforkur en æskuheimili hennar litaðist af sorg. Þar bregður afa og ömmu höfundar einnig fyrir og bjarma af þeim tíma í sögu landsins þegar ungbarnadauði var mikill, húsnæðisvandi, jafnvel verri en í dag og lífsbaráttan hörð. Pabbi hennar veikist af alzheimer og hún fer sérlega vel með þann hluta sögu hans og samskipti þeirra tveggja eftir að veikindin taka yfir. Það er sérlega heillandi hvernig hún notar öll skilningavitin fimm til að kveikja minningar, vekja þær með lykt, hljóðum, snertingu, tilfinningu og bragði.
Bjarni M. Bjarnason hefur alveg sérstakan tón. Það er sama hvort hann skrifar skáldsögur eða ljóð höfundarbragur hans er auðþekktur og heillandi. Fálmandi hendur í fjöru sverja sig í ætt annarra skrifa Bjarna og þarna bregður fyrir hlýju og kulda, dimmu og myrkri, sorg og gleði, barátta og sigrar og svo er hann líka fyndinn. Það er ekki öllum gefið að átta sig á að tilgangur lífsins sé á hælum manns eins og leigumorðingi lífið á enda eða að það að deyja sé eins og að bera út póst. Það má una sér lengi við lestur þessarar bókar.
Það kemur alltaf nýr skafl í fjallið eftir Eyþór Árnason er efnismikil og falleg ljóðabók. Hún fjallar um ferðalög og staði jafnt hugræn sem raunveruleg. Íslensk náttúru birtist í allri sinni fegurð sem og borgin á fyrir augum manns á göngu. Veðrið fær sinn sess eða sitt hlutverk meðan á ferðunum stendur og hefur áhrif á blæ ljóðanna, upplifananna og hvernig fólk nær að tengjast og mætast. Það þarf líka að taka sér tíma til að hugsa um þessi ljóð, ígrunda þau. Eyþór er frábært ljóðskáld og alltaf ánægjulegt að handleika og lesa bók eftir hann.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







