Fimmtudaginn 12. nóvember næstkomandi gefst gott tækifæri til að kynna sér nýja tækni og læra að nýta hana betur. Þá gengst Íslandsbanki fyrir tæknikaffi kl. 16.30 og býður þeim sem vilja að koma og kynna sér stafræna þjónustu bankans og læra að nota hana. Í tilkynningu frá Íslandsbanka segir:
„Tækninni fleygir fram og við viljum verða að liði 🤝
Okkur langar því að bjóða í Tæknikaffi 12. nóvember í höfuðstöðvum Íslandsbanka í Kópavogi, þar sem við förum yfir notkun Íslandsbankaappsins og netbankans. Við kynnum meðal annars nýja möguleika í appinu og netbankanum, svörum öllum þeim spurningum sem kunna að brenna á þér og kynnum leiðir til að nýta stafræna þjónustu bankans sem best.
Við ætlum að hittast í Dalnum á 3. hæð í Norðurturni Smáralindar en lyfturnar eru staðsettar vinstra megin við útibú Íslandsbanka. Á boðstólnum verður kaffi, vöfflur og gott spjall. Gott er að taka með sér tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma til að fá meira út úr spjallinu.“







