Mbl.is er með umfjöllun um tannlæknakostnað eldra fólks í dag. Þar kemur fram að samkvæmt reglugerð um endurgreiðslu tannlæknakostnaðar ber Sjúkratryggingum Íslands að endurgreiða þeim sem orðnir eru 67 ára 75% tannlæknakostnaðar. Þar er miðað við svokallaða ráðherragjaldskrá, sem að sögn Ástu Óskarsdóttur, formanns Tannlæknafélags Íslands, hefur ekki fylgt verðlagi og hefur lítið hækkað frá 2004 eða í 13 ár. „Því má gera ráð fyrir að endurgreiðslan sé raunverulega 30-40%, eins og verðlag er í dag,“ segir Ásta. „Það er í raun verulega brotið á rétti þessa hóps.“ Og á mbl segir ennfremur.
Hún segir að tannlæknar hafi þurft að fylgja verðlagi, eins og allir aðrir sem selji vörur og þjónustu. „Öryrkjar og aldraðir fá lífeyri, sem er verulega skorinn við nögl. Lítið sem ekkert er afgangs til að standa straum af tannlæknakostnaði. Svo nær fólk mun hærri aldri og að auki eru fleiri með eigin tennur nú en áður, Það útheimtir meira viðhald á tönnum og þar með aukinn kostnað.“ Að sögn Ástu var hlutfall fólks, 67 ára og eldri, sem fer til tannlækna skoðað sérstaklega á árabilinu 2010-2014. Hlutfallið var á milli 52 og 58,5% sem Ásta hefur verulegar áhyggjur af.
Fyrir síðustu alþingiskosningar funduðu forsvarsmenn Tannlæknafélagsins með fulltrúum helstu stjórnmálaflokka þar sem staða tannheilsu allra lífeyrisþega var rædd. „Allir flokkar sýndu áhuga á því að huga að bættri tannheilsu hjá lífeyrisþegum,“ segir Ásta. „Á síðasta ári lögðu Sjúkratryggingar (SÍ) og Tannlæknafélagið drög að samningi sem gilda átti um endurgreiðslur fyrir alla lífeyrisþega og SÍ reiknaði út að þetta myndi kosta rúmlega einn milljarð. Ein af þeim hugmyndum, sem komið hafa upp, er að tekið verði upp svokallað tappagjald á drykki sem eru skaðlegir tönnunum, eins og t.d. gosdrykki með sykri og glerungseyðandi sýrum til að fjármagna pakkann.“
Ásta segir að Tannlæknafélagið hafi áhuga á að koma að innleiðingu slíks samnings og segir að stjórn félagsins hafi fundað með Óttari Proppé heilbrigðisráðherra. Rætt er við fleiri í þessari umfjöllun mbl.is meðal annars formann Landssambands eldri borgara, Hauk Ingibergsson sem segir meðal annars.
„Kostnaðarþátttaka eldri borgara er einfaldlega of mikil og Alþingi hefur ekki tryggt Sjúkratryggingum Íslands fjármagn til að fylgja eftir ákvæðum um greiðslu kostnaðar. Þessu þarf að breyta. Góð tannheilsa er mikilvæg til að fólk haldi heilsu og nærist eðlilega. Þetta er ekki bara spurning um útlit og fallegt bros. Á undanförnum árum hefur verið byggð upp góð tannlæknaþjónusta fyrir börn og unglinga og nú er komið að eldri borgurum að fá samsvarandi þjónustu,“ segir Haukur. Sjá alla umfjöllun mbl.is hér.