Dulinn aðdragandi hjartaáfalls!

,,Undanfari hjartaáfalls felst oft í litlum merkjum sem við berum ekki kennsl á,“ segir Björn Ófeigsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is en hann er með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð. Björn segir að aðdragandi áfallsins sé oft dulinn og að við hlustum ekki á einkennin. Það komi mörgum því miður í koll en líklegt megi telja að á hverjum degi fái fólk einkenni sem stafa frá hjarta en bera ekki kennsl á þau og aðhafist þess vegna ekkert. Í einhverjum tilfellum hefði mátt koma í veg fyrir hjartaáfall.

Hér á eftir fer athyglisverð grein Björns:

Aðdragandinn

,Aðdragandinn að hjartaáfallinu mínu var fyrirvaralaus að því er mér fannst í fyrstu. Þrátt fyrir að ég færi yfir síðustu mánuði í huganum dagana eftir áfallið gat ég hreinskilnislega sagt að ég hafi alls ekki átt von á þessu enda innan við fertugt á þeim tíma.

Ég ferðaðist mikið vegna vinnu minnar árin á undan og álagið var oft mikið. Ég átti erfitt með svefn og undir það síðasta fann ég hvernig úthaldið minnkaði og þreytan jókst og mér fannst ég stundum vera að brenna út.

Ég var oft með óreglulegan hjartslátt og aukalsög sem lýstu sér þannig að það var eins og hjartað sleppti úr slagi. Þetta var meira áberandi þegar ég var á ferðalögum, mér var þungt fyrir brjósti, varð fljótt móður og leið illa. Ég hafði af þessu áhyggjur og fór því til heimilislæknis sem tók blóðprufur.

Læknirinn sagði mér að það væri í lagi með blóðprufurnar og taldi hann líklegt að millirifjagigt væri líklega að hrjá mig og álagið og streitan væri bara að segja til sín. Hann gerði lítið úr þessu og skrifaði ristruflanir á kvíða en sá ekki ástæðu til að senda mig til frekari rannsókna.

Það er líklega í mannlegu eðli að hundsa einkenni sem líkaminn sendir okkur og svo var um mig. Þó mér væri órótt kunni ég ekki að túlka það sem líkaminn var að segja mér. Einkenni geta jú verið snúin en þess mun meiri ástæða til að kanna málið til hlítar.

Einkennin mín

o   Mikið álag í langan tíma og mikil streita

o   Úthaldsleysi

o   Mæði

o   Erfitt að ná upp þreki

o   Þyngsl fyrir brjósti

o   Tilfinning fyrir því að mig vantaði súrefni

o   Hjartsláttartruflanir undir álagi og eftir mikið álag

o   Ristruflanir

o   Of hátt kólesteról, 6,9 átta mánuðum fyrir hjartaáfall en 7,6 þegar hjartaáfallið reið yfir

Aldurinn segir ekki allt

Þrátt fyrir að hafa verið einungis 37 ára gamall á þessum tíma hefðu þessi einkenni átt að duga til þess að heimilislæknirinn minn léti athuga hjartað í mér og senda mig til sérfræðings. Sum þessara einkenna voru klárlega viðvörunarbjöllur um að ekki væri allt með felldu. Því miður lét hann hjá líða og ég hafði engar forsendur eða ástæðu til að véfengja hann á þessum tíma. Átta mánuðum eftir blóðprufuna hjá heimilislækninum fékk ég hjartaáfall.

Mig langaði að deila þessu því ég veit að það eru margir sem telja sig ekki finna fyrir neinu. En þegar grannt er skoðað er eitt og annað sem bendir hugsanlega til að það sé ráð að panta sér tíma hjá hjartasérfræðingi.

Gildin mikilvæg

Það er mikilvægt að þekkja gildin sín, þ.e. blóðþrýsting, kólesteról og púls og jafnvel blóðsykur. Það er þess vegna góður siður að fá afrit af niðurstöðum rannsókna sem gerðar eru og sætta sig ekki við að fá engin svör frá læknum heldur halda áfram þar til viðunandi niðurstaða fæst, góð eða slæm.

Verum góð hvort við annað og njótum þess að vera til því það er ekki sjálfsagt,“ segir Björn Ófeigsson og er reynslunni ríkari eftir að hafa fengið hjartaáfall innan við fertugt.

Ritstjórn nóvember 2, 2022 07:00