Framtíðarsamfélag án aldursfordóma

Á laugardag, þann 7. mars 2026 verða vinnustofur í Borgarbókasafninu Grófinni, Tryggvagötu 15, 101 Reykjavík um framtíðarsamfélag án aldursfordóma og þar verða ræddar staðalímyndir eldra fólks og upplifanir fólks af þeim. Hefur þú mætt staðalímyndum um eldra fólk í sjónvarpsþáttum, fréttum, samfélagsmiðlum, kvikmyndum eða hönnun og tísku?

Saman könnum við hvernig hægt er að umbreyta hugmyndum um „of ungt“ og „of gamalt“ í samtal um hæfni, þátttöku og möguleika. Veltum fyrir okkur hvernig tækni getur stutt við baráttuna gegn aldursfordómum og hverjir drifkraftar aldursfordóma eru í samfélaginu.

Hér býðst einstakt tækifærir fyrir fólk á öllum aldri til að deila reynslu, læra hvert af öðru og efla framtíðarlæsi. Mótum í sameiningu Framtíðarsamfélag án aldursfordóma / Future Society without Ageism [1].

Um er að ræða tvær vinnustofur milli: kl. 14:00-14:45 og kl. 15:00-15:45

Þátttaka ókeypis.

Vinnustofan fer fram á Framtíðarfestivali Borgarbókasafnsins og er samstarfsverkefni Framtíðarseturs Íslands og þekkingarmiðstöðvarinnar Farsæl öldrun og er hluti af verkefninu Northern Futures Hub stýrðu af félagasamtökunum Folke í Tromsö með styrk frá Nordisk Atlantsamarbejde – NORA.

Hér er viðburðurinn á Facebook:
www.facebook.com/events/2139861370115047