Hekluð listaverk innblásin af skáldverkum Guðrúnar frá Lundi

Textíllistakonan Aðalbjörg Erlendsdóttir opnar skemmtilega sýningu á Borgarbókasafninu Árbæ, fimmtudaginn 27. ágúst, undir yfirskriftinni Undan heklunálinni.

Á sýningunni eru textílverk sem Aðalbjörg vinnur með frjálsu hekli og mósaík hekli, þar sem litagleði og notagildi fara saman í púðum og teppum. Hluti verkanna tilheyra seríunni Dalalíf og er nafnið tileinkað bókaflokki Guðrúnar frá Lundi sem Aðalbjörg hlustaði á meðan hún heklaði. Önnur verk eru sjálfsprottin þar sem Aðalbjörg lagði af stað með ákveðna liti og hugmynd í huga, innblásið af náttúrunni, himninum og sólkerfinu, en verður oft að einhverju öðru í sköpunarferlinu.

Aðalbjörg Erlendsdóttir lauk námi í fata- og textílhönnun frá Columbine Skolen í Kaupmannahöfn árið 1992. Hún hefur haldið þrjár einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum.

Áður lærði hún líffræði við Háskóla Íslands en skírskotun til náttúrunnar sést vel í verkum hennar. Aðalbjörg (gjarnan kölluð Budda) starfar undir merkinu Budda-design. Á ferlinum hefur Aðalbjörg málað á silki og hannað úr því föt og slæður og einnig hefur hún fengist við landslagsmálun. Undanfarið hefur Aðalbjörg gengið í gegnum veikindi sem dregið hafa úr getu hennar til silkimálunar og hefur af þeim sökum snúið sér að listsköpun með heklunálinni.

Auglýsing

Sýningin Undan heklunálinni opnar á Borgarbókasafninu Árbæ, fimmtudaginn 27. ágúst kl. 16 og stendur til 8. nóvember.

Öll hjartanlega velkomin.

Nánar á heimasíðu Borgarbókasafnsins.

www.borgarbokasafn.is