Solveig Thoroddsen opnar sýningu á verkum sínum á Borgarbókasafninu Spönginni, fimmtudaginn 1. október kl. 16:30.
Sýningin „Mér er um og ó!“ inniheldur fjölbreytt myndverk af kvenpersónum úr þjóðsögunum, en Solveig gaf út samnefnda bók árið 2025 þar sem hún valdi, umritaði og myndskreytti 15 íslenskar þjóðsögur.
Solveig Thoroddsen er myndlistarkona, grunnskólakennari og leiðsögukona að mennt. Hún nam myndlist við Listaháskóla Íslands þar sem hún útskrifaðist með meistaragráðu árið 2015.
Sýningin stendur til 31. október.
Öll velkomin!







