Gefum hversdagslegum plastpokum nýtt hlutverk!

Christalena Hughmanick og Diana Burkot verða með skapandi smiðju á Borgarbókasafninu Gerðubergi, laugardaginn 26. september kl. 13:00 – 14:30. Þar verða búin til litrík og einstök pennaveski úr plastpokum og öðru plastefni.

Auglýsing

Christalena og Diana kynna aðferð þar sem plastpokar eru bræddir með straujárni til að festa þá saman og gera þá sveigjanlega. Þátttakendur búa síðan til veski úr þeim sem tilvalin eru fyrir blýanta, snyrtivörur, snúrur eða hvaðeina sem þeim dettur í hug.

Smiðjan hentar unglingum og fullorðnum. Engin fyrri reynsla af saumaskap né öðru handverki er nauðsynleg og allt efni er á staðnum. Smiðjan fer fram á ensku.

Christalena Hughmanick er bandarísk textíllistakona búsett í Reykjavík. Hún vinnur meðal annars með bútasaum og þátttökulist. Hún er höfundur samvinnuverkefnisins Saumum saman Ísland en þess má geta að nú stendur yfir sýning á afrakstri þess, stóru bútasaumsverki, á Borgarbókasafninu Spönginni. Sýningunni lýkur laugardaginn 26. september.

Nánar: www.christalenahughmanick.com

Diana Burkot er rússnesk listakona og tónlistarkona, búsett í Reykjavík. Í listsköpun sinni fjallar hún meðal annars um pólitísk og samfélagsleg málefni. Diana er einnig aktívisti og hefur verið meðlimur í aktívistalistasamsteypunni Pussy Riot frá árinu 2011.

Nánar: https://www.instagram.com/diburkot/

Borgarbókasafnið tekur þátt í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek. Markmiðið verkefnisins er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur. make-a-thek er styrkt af New Horizons sjóði Evrópusambandsins.

 

Nánar um viðburðinn á heimasíðu Borgarbókasafnsins.