Nýlega voru sýndir fyrstu þættirnir af Love Story; John F. Kennedy and Carolyn Bessette Kennedy, á Disney+ og þeir hafa þegar fengið metáhorf. Oft hefur Kennedy-fjölskyldan verið sögð ígildi konungaættar eða háaðals Bandaríkjanna og þáttanna var beðið af óþreyju meðal áhugafólks um ævi og örlög þessa ríka, valdamikla en að sumu leyti ólánssama fólks. Svo rammt hefur kveðið að bandaríska pressan var farin að tala um bölvun Kennedyjanna.

Carolyn og John meðan allt lék í lyndi.
Flestir muna líklega að JFK jr. og eiginkona hans, Carolyn létust í flugslysi árið 16. júlí árið 1999 og allir vita að John F. Kennedy eldri var skotinn til bana í Dallas 22. nóvember 1963. Sá atburður markaði djúp spor í heimssöguna á síðustu öld og lengi var talað um að allir myndu hvar þeir voru staddir þegar þeir heyrðu fyrst af morðinu á John F. Kennedy. Hvort það er rétt eða ekki er nokkuð víst að víðtæk samúð með eiginkonu hans, Jaqueline og börnum þeirra tveimur fór um heiminn. Þau þóttu sýna mikið hugrekki og myndir af hinum þriggja ára John F. Kennedy yngri að heilsa kistu föður síns að hermannasið flugu um heiminn. Hversu margar minningar drengurinn hafði um föður sinn þegar hann óx upp er óvíst en hann átti í stormasömu sambandi við móður sína alla tíð. Aðdragandanum að andláti hennar er lýst í þriðja þætti seríunnar, Love Story, sem er alls níu þættir.
Jaqueline Kennedy vakti óskipta athygli fjölmiðla og þjóðarinnar allrar meðan maður hennar sat á forsetastóli og eftir að hann var skotinn. Slúðurblöðin kölluðu hana America‘s Widow eða ekkju Ameríku. Styrkur hennar og yfirvegun vakti athygli og aðdáun þetta var ekki fyrsta sorgin sem hún tókst á við því þau hjónin misstu dóttur, Arabellu sem fæddist andvana árið 1956 og son Patrick er dó tveggja daga gamall árið 1963. Eftir að hún giftist gríska skipakónginum Onassis eltu paparazzar hana hvert sem hún fór. Hún hélt Onassis nafninu fram í andlátið en síðustu árin sem hún lifði bjó hún með demantakaupmanninum og viðskiptajöfrinum, Maurice Tempelsman. Hann var af gyðingaættum en hún kaþólsk eins og Kennedy-fjölskyldan öll. Jackie var greind með non-Hodgkin’s lymphoma, sjaldgæfa tegund blóðkrabbameins árið 1993 og lést ári síðar aðeins 64 ára gömul.

Joseph og Rose Kennedy umkringd börnum sínum.
Sorgir og sigrar
Í sjónvarpsþáttunum er ýjað að þeim djúpstæða og mikla samkeppnisanda sem ríkti og ríkir kannski enn innan Kennedy-fjölskyldunnar. Allt hófst það með Joseph Kennedy og eiginkonu hans, Rose Fitzgerald Kennedy. Systkinin voru níu og miklar kröfur voru gerðar til þeirra allra. Þau áttu að standa sig vel í námi vera afburðaíþróttamenn og vinna sig hratt upp metorðastigann þegar út í atvinnulífið var komið. Faðir þeirra var ákaflega metnaðurfullur maður og hann þráði sjálfur heitar en nokkuð annað að ná æðstu metorðum innan bandarísks stjórnarkerfis. Hann hefði helst af öllu viljað verða forseti en þegar ljóst var að hann næði ekki því markmiði lagði hann allt kapp á að synir hans beindu augum sínum þangað.
Fyrst var það Joseph yngri sem var beinlínis menntaður og undirbúinn undir það hlutverk að verða Bandaríkjaforseti. Þegar hann var skotinn niður í sprengjuflugvél sinni í stríðinu og lést beindust allra augu að John eða Jack eins og hann var alltaf kallaður innan fjölskyldunnar. Jack var sjarmerandi, fágaður í framkomu, greindur og mælskur. Robert stóð í skugga bræðra sinna en hann var hægari en Jack en afburðagreindur, lögfræðingur að mennt og hafði einmitt þá greinandi hugsun sem einkennir góða lögmenn. Edward eða Teddy var trúðurinn, skemmtilegur og fjörugur en honum var ekki ætlað leiðtogahlutverk.
En andlát Josephs yngra var ekki eini harmurinn sem kveðinn var að fjölskyldunni í stríðinu, William Cavendish, markgreifi af Hartington, var skotinn af þýskri leyniskyttu 9. september 1944 en hann leiddi breskt herfylki í innrás Breta inn í Belgíu. Hann og Kathleen Kennedy, næstelsta systirin, voru þá nýgift. Kathleen giftist ekki aftur og hélt titlinum, markgreifafrú af Hartington þar til hún lést sjálf í flugslysi árið 1948, aðeins tuttugu og átta ára gömul.

Systkinin ásamt föður sínum í Hyannis Port, sumardvalarstað fjölskyldunnar. Á myndina vantar Joseph og Rose Marie sem var fötluð.
Robert næstur á eftir bróður sínum
Þegar Jack var myrtur sökk Bobby niður í mikið þunglyndi en náði sér upp úr því og fyrir hvatningu konu sinnar Ethelar ákvað hann að bjóð sig sjálfur fram. Allir vita hvernig það fór. Bobby var drepinn í Los Angeles þann 5. júní 1968. Robert og eiginkona hans Ethel áttu ellefu börn saman. Tíu þeirra hafa getið sér gott orð í bandarísku stjórnmála- og menningarlífi og þrjú þeirra beitt sér kröftuglega í mannréttindabaráttu og baráttu fyrir aukinni umhverfisvernd. Ethel var þó ekki laus við bölvunina fremur en Jackie því einn sona hennar og Bobby, David Anthony, lést úr ofskammti lyfja árið 1984 aðeins tuttugu og átta ára og annar Michael í skíðaslysi árið 1997 þrjátíu og níu ára. Tengdadóttir hennar lést árið 2012, barnabarn árið 2019 og annað barnabarn hvarf ásamt syni sínum í kanóferð árið 2020 og ekkert hefur til þeirra spurst en Ethel sjálf lést árið 2024 níutíu og sex ára.
Trúðurinn Edward lék sér á meðan eldri bræður hans settu svip sinn á söguna. Hann var þeirra langyngstur en þegar hann var grunaður um að hafa orðið valdur að dauða ungrar konu árið 1969 á Chappaquiddick-eyju voru menn vissir um að úti væri um stjórnmálaferil hans. Hann var öldungadeildarþingmaður á þessum tíma. Bíll hans fannst á kafi úti í á og lík ungrar konu í honum. Edward játaði á endanum að hafa lagt á flótta frá slysstað eftir að hann missti bílinn út af brú út í ána. Hann hélt því þó alltaf fram að hann hefði reynt að bjarga stúlkunni, Mary Jo Kopechne úr bílnum en ekki tekist. Áður hafði hann lifað af flugslys þar sem tveir aðrir dóu. Sagt er að þá hafi Robert bróðir hans sagt: „Einhverjum þarna uppi er illa við okkur.“
Í það minnsta mun fleira en gengur og gerist jafnvel í stórum fjölskyldum. Auk þess sem talið hefur verið má nefna að Caroline Kennedy, systir JFK yngra, missti dóttur sína, Tatiönu, aðeins þrjátíu og fimm ára úr krabbameini. Einn sona Roberts, Joseph, var valdur að bílslysi og farþegi í bílnum lamaðist slysinu og William, sonur Jean yngstu Kennedy-systurinnar, var sakaður um nauðgun en sýknaður. En hvort sem það er réttmætt eða ekki eða hvort raunverulega geti hvílt bölvun á fjölskyldum er varla einleikið hve mikið hefur gengið á í lífi Kennedyjanna. Love Story; John F. Kennedy and Carolyn Bessette Kennedy, eru hins vegar ekki fyrstu þættirnir eða kvikmyndirnar sem gerðar hafa verið um þessa fjölskyldu og verða án efa ekki þeir síðustu. Nógur er efniviðurinn í gott drama.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







