Neðanjarðarskáld verður til

Andlit eftir Bjarna Bjarnason er skáldævisaga drengs sem elst upp á hrakhólum. Hann er látinn ganga sjálfala að mestu og kemst upp með að stunda ekki skóla og almennt falla milli rimlanna í kerfinu. Þótt sagan sé skrifuð af mikilli kímni og Gullbrandur Högnason hristi, að því er virðist af sér flest mótlæti, er ekki hægt annað en að finna til með þessu barni, unglingi og unga manni. Hann er einfari og er án baklands í lífinu. Að hve miklu leyti hann kýs sér það hlutskipti er ekki alveg skýrt.

Foreldrar Bjarna eru uppteknir af því að leita lífshamingjunnar hvort á sinn hátt og það virðist ekki flækjast neitt sérstaklega fyrir þeim að þau bera ábyrgð á barni. Bjarni forðast skólann en les gríðarlega mikið og nær að afla sér margvíslegrar og mikilvægrar menntunar á þann hátt. Hún er hins vegar lítils metin í samfélaginu en honum finnst það ekki skipta máli því hann ætlar sér að verða rithöfundur og fer að leggja grunn að því framtíðarstarfi mjög ungur.

Hann flækist um á Norðurlöndum með föður sínum en síðan einn og fer víða um. Fátæktin er hans fylgifiskur og þótt honum takist að gefa út bækur seljast þær ekki. Hann kynnist alls konar fólki og virðist taka öllum af sama umburðarlyndinu, slöngukonunni sem heillar hann ungan, æskuástinni Kleópötru sem er í leit að tilbreytingu, skáldbróður sem er morðingi og öðrum skáldbróður sem enduruppgötvar sjálfan sig reglulega.

Honum tekst einnig að koma sér margvísleg vandræði sem gætu endað illa en tekst á einhvern lygilegan hátt að sleppa að mestu óskaddaður úr hverri raun. Hér er verið að takast á við hvernig við myndum okkur sjálf, verðum að því fólki sem við viljum verða eða mótumst í einhverja persónu fyrir einhverja röð tilviljana. Við setjum upp andlit og mætum veröldinni með þann svip sem við höldum að virki best í það og það sinnið. Við störum einnig á eigin andlit í spegli samtímans og reynum að finna okkur stað innan hans. Sagan er skrifuð á lipurlegan og stórskemmtilegan hátt en veitir um leið ómetanlega innsýn inn í heim þeirra sem finna sér ekki hefðbundna hillu í þessu samfélagi. Bjarni Bjarnason hefur hlotið Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness, Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.