Sælkeri sem elskar fegurðina í öllum sínum myndum

Halldór Laxness lagðist ungur í ferðalög en ólíkt Garðari Hólm, sögupersónu í bók afa hans, urðu ferðalögin honum til gæfu og gleði fremur en vandræða. Hann unir sér vel í Frakklandi þar sem hann býr í um það bil 60 km fjarlægð frá París en hlakkar ósegjanlega til að leggja af stað frá Feneyjum í siglingu um gríska Eyjahafið í seinni partinn í ágúst. Halldór er margreyndur fararstjóri og sannarlega á heimavelli á Grikklandi því forngrísk menning og skáldskapur eru honum hugleikinn.

Halldór á búddastyttumarkaðnum í Bangkok í Taílandi árið 2019.

Það liggur beinast við að spyrja fyrst margreyndan ferðalang sem hefur flækst víða hvort eitthvað jafnist á við siglingu um gríska Eyjahafið?

„Þetta er eins og fara til Paradísar og maður vill helst ekki snúa aftur,“ segir Halldór. „Þessi sigling frá Feneyjum og um Eyjahafið er á listanum yfir MÖST-ferðiir, ferðir sem þarf að fara í einu sinni á ævinni. Fegurð frá morgni til kvölds. Þarna er ægifegurð og erfitt að snúa aftur til raunveruleikans eftir níu daga í Eyjahafinu. Ég hef nýtt mér þau tækifæri sem gefast þegar maður er freelance í listalífinu og leikhúslífinu. Þar af leiðandi gat maður farið í ferðir um heiminn bæði með fjölskyldunni og einn milli verkefna. Þetta er áhugamál og vegna þess að maður er upprunninn í eylandi er maður dálítið mikið hrifinn af því að fá að þvælast um víða veröld og sjá heiminn.“

Hofin í Mandalay⁩-bæ, ⁨Myanmar 2016 (Burma)⁩

Óviðjafnanlegar morgungöngur

En hvað er það þá sem heillar þig mest þegar þú ert á ferðalögum og þú gerir hvar sem þú kemur?

„Ég kýs að taka morgungöngur. Þá er maður með innfæddum. Ég lærði það af Ítölum að fara snemma á fætur. Þeir eru komnir á ról klukkan sex á morgnana og það er svo gaman að sjá bæi og borgir lifna við. Enginn túristi er vaknaður og þeir því ekki komnir inn í myndina. Maður sér hvernig lífið í bænum gengur fyrir sig. Leikhúsmaðurinn í mér nærist af þessum undirbúningi undir daglega lífið í bænum. Það er eins og fólkið sé að undirbúa sviðið fyrir sýningu og stilla sér upp áður en er dregið frá. Þegar maður gengur út á þessum tíma morguns í Miðjarðarhafslöndunum, sér sólina koma upp og heyrir fuglana syngja meðan maður gengur út í bæinn lifir maður eitt af þeim augnablikum sem eru meðal þess fegursta sem býðst.

⁨Drymalia-⁩strönd, ⁨Naxos, Suður Aegean⁩ í Grikkland ⁩2022.

Meðal þessa besta sem hægt er að gera er að vakna snemma í Feneyjum og fara út í gönguferð. Þá er enginn á ferli og ljósið eða birtan í bænum engu lík. Hún er hreinlega heimsfræg. Þessi eyjasigling sem ég ætla í byrjar í Feneyjum, því mikla siglinga lýðveldi sem var. Feneyingar réðu yfir Eyjahafinu eða kannski réttara sagt réðu miklu því þeir voru margar verslunarstöðvar og umsvif, voru til dæmis í Svartfjallalandi alveg fram á átjándu öld. Kylos hjá Mykonos var undir Feneyingum þangað til Grikkir fengu sjálfstæði.

Hádeigismatur á Agiassos-strönd, ⁨Suður-Aegean í Eyjahafinu.

En ég er hins vegar einn af þeim mönnum sem hafa gaman af öllum. Ég ægilegur sælkeri, elska fegurðina bæði í listum og alveg söguóður maður. Ég hef það í blóðinu bæði frá föður og afa. Mér finnst alveg nauðsynlegt að komast alltaf að hver er saga hvers staðar. Ég reyni að setja þessar ferðir upp eins og þær væru leiksýning. Við hefjum leik í Feneyjum því þar er lykillinn, þær byrja að verða stórveldi 800 árum eftir Krist og við höldum síðan þúsund ár aftur í tímann meðan við þræðum okkur eftir eyjunum. Við siglum frá nútímanum aftur í fornöld. Lífið og tilveran á grísku eyjunum hefur vissulega breyst en fram til 1970-1980 var lítið af ferðmönnum þarna og þótt þeir séu margir núna má auðveldlega skemmta sér við að skoða þessa merku staði, fara til Catolono þar sem fyrstu Ólympíuleikarnir voru haldnir fyrir þúsund árum og áttu sér samfellda sögu í fjögur hundruð ár. Svo duttu þeir upp fyrir en svo byrjað að halda þá aftur á tuttugustu öld.“

Moutsouna-höfn á Naxos í Eyjahafinu árið 2022.

Skemmtisiglingar einfaldar og þægilegar

Þess má geta að afi Halldórs er Halldór Laxness rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi og pabbi hans Einar, var sagnfræðingur og kennari. En hvernig ferðlögum ertu hrifnastur af?

„Ég hef stundað alls konar ferðalög, allt frá fjallaferðum á Íslandi yfir í Alpafjallaferðir, niður á strendur og inn í regnskóga í Asíu eða Mexíkó. Ég er hrifinn af þessu öllu en sigling á skemmtiferðaskipi er auðvitað frábær og einhverjir töfrar felast í því að leggja sig að kvöldi og vakna upp á alveg nýjum stað að morgni, beinlínis í öðrum heimi. Það er líka mjög þægilegur ferðamáti og lúxus og skemmtilegheit. Þótt skipin séu orðin stór er innan þeirra sérstakt samfélag. Þetta er ekki eins og á nítjándu öld þegar allir klæddu sig upp í kjól og hvítt til að borða kvöldverð við skipstjóraborðið þá er alltaf alveg sérstök stemning yfir skipum. Það var alltaf gengið niður að höfn í minni fjölskyldu og gjarnan sagt: „Nú skulum við ganga niður að höfn og sjá skipin koma og fara.“ Fyrr á tímum sigldu Íslendingar með Gullfossi og Kronprins Fredrik til Kaupmannahafnar en í dag geta þeir valið sér skip og leiðir.

Aflaskipt á Ananya strönd í Suður Province⁩ á ⁨Sri Lanka⁩ árið 2017.

Það er unaður að sigla um Eyjahafið og fara í land á öllum þessum stöðum. Við getum nefnt Bari á Ítalíu. Þar er örugglega stunduð fullkomnasta matargerð í heiminum. Öll matarmenning Miðjarðarhafsins slær þar saman. Þeir sameina strauma frá Grikklandi, Föníkíumönnum, Tyrklandi, Spáni, Arabalöndunum og Norður-Ítalíu en þeirra matargerð er lituð af áhrifum frá Kína eftir að Marco Polo opnaði leiðina þangað. Ég treysti mér til að fullyrða að þar er stunduð flottasta matargerð í heiminum. “

Leikþáttur í Minjasafninu í Paros.

Kennir á Íslandi en blómstrar í Frakklandi

Halldór kennir leikaranemum á Íslandi um gríska leikhúsið og sögu forngrikkja á veturna. Hann er hins vegar búsettur í Frakklandi. Hefur þú verið þar lengi?

„Já, ég bjó fyrst í París í fimm ár en flutti svo út úr borgina og er í svona 60 km fjarlægð frá stórborginu rétt hjá þeim fræga bæ Fountainrbleau. Við erum eiginlega út í sveit hérna. Þetta er ekki hægt að kalla þetta úthverfi frá París. Hins vegar tekur okkur ekki nema klukkutíma að skreppa niður í Burgundy og hér blasir við náttúrufegurðin alls staðar og hér er allt í blóma einmitt núna. Fyrir utan gluggann blómstrar rósarunni af mikilli grósku og minnir á að Rósastríð Shakespeares gerðust einmitt hér á þessum svæðum. Héðan frá og til Parísar og yfir í Normandí og yfir til Bretlands. Það var mikill samgangur milli Breta og Frakka.

Hugleiðsla á Mykonos-eyju í Eyjahafinu árið 2022

Í Brekkukotsannál talaði fólkið samúðarfullt um að Garðar Hólm hefði lagst í ferðalög. Ég lagðist snemma í ferðlög, var nítján ára og hef verið á flakki síðan. Þótt ég hafi búið í Frakklandi í þrjátíu ár hef ég verið á sífelldri hreyfingu. Samgöngur urðu góðar milli Íslands og Frakklands eftir að þeir hættu að fljúga til Lúxembúrgar. Það má segja að upp að þeim tímapunkti hafi París verið afskaplega afskekktur bær frá Íslandi séð.“

Auk þess að ferðast mikið hefur hann einnig verið búsettur víða um heim því hann stundaði nám í leiklist á Ítalíu og í Bandarríkjunum og starfaði á Spáni, Frakklandi, Íslandi og Kanada sem leikari og leikstjóri. En þeir sem hafa áhuga á að kynna sér sigluna sem fyrirhuguð er í ágúst geta slegið á þennan link og lesið um þau ævintýri sem bíða í gríska Eyjahafinu.
https://uu.is/ferd/sigling-um-griska-eyjahafid-agust/

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.

Ritstjórn júní 4, 2025 07:00