Sextán hringir umhverfis Jörðina

Sporbaugar eftir Samönthu Harvey lýsir sólarhring í lífi sex geimfara á sporbaug um Jörðu. Þeir fara sextán hringi um plánetuna á þeim tíma og í bókinni eru sextán kaflar. Höfundur leitast við að draga upp mynd af upplifun þeirra meðan þeir þeytast tímabelta á milli og sjá mannlífið í allt öðru ljósi en við sem erum með báðar fætur á jörðinni.

Textinn er ákaflega ljóðrænn og þótt það gerist ekki mikið í þessari bók heldur hún athygli manns allt til enda. Meðal þess sem gerist er að fólkið fylgist með fellibyl geysast um og einn geimfaranna missir mömmu sína. En mest snýst þetta um hugsanir fólksins í þessum óvenjulegu aðstæðum. Þau velta fyrir sér lífi sínu og sjá margt á annan hátt þegar þau standa svona langt fyrir utan og frá sínu daglega lífi. Ein kvennanna fær daglega sendar myndir frá manninum sínum en það er hans leið til að minna hana á það sem bíður hennar heima og einn karlanna trúði því þegar hann var barn að Rússar hefðu þegar sent fólk til tunglsins og hann veltir fyrir sér hvaða áhrif sú sögusögn hafði á drauma hans og líf.

Það er líka komið inn á af hve miklu kæruleysi við höfum umgengist plánetuna okkar og hve illa við höfum farið með umhverfið og höfundur gerir manni ómögulegt annað en að spyrja sig hvað það er að vera maður og hvaða ábyrgð við berum gagnvart umhverfinu, okkur sjálfum og öðrum. Það er einnig athyglisvert hvernig hún leitast við að koma til skila þyngdarleysi geimsins og því að vera í þyngdarleysi nokkuð sem ekkert okkar þekkir af eigin raun og við getum aðeins ímyndað okkur. Það og þessi skringilega fjarlægð, að vera svo langt frá öllu að þú getur bókstaflega ekkert gert, engu tengst og ekki haft áhyggjur af neinu. Allt er úr þínum höndum og þú neydd eða neyddur til að vera í þessu litla rými og gera þitt besta úr því sem þar býðst. Þetta er mjög áhugaverð tilraun hjá Samönthu Harvey og athyglisverðar vangaveltur sem hún setur fram.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.