Stefnt að því að ríkið greiði 75% af tannlæknakostnaði eldri borgara

Eftirfarandi tilkynning um greiðsluþáttöku ríkisins í tannlæknakostnaði eldri borgara og öryrkja hefur verið birt á vef stjórnarráðsins.

Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar öryrkja og aldraðra eykst 1. janúar næstkomandi úr 50% í 57%. Þetta er liður í áætlun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga. Áætlaður kostnaður ríkisins vegna þessa nemur 200 milljónum króna. Stefnt er að því að greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna tannlækniskostnaðar þessara hópa verði komin í 75% árið 2024. Til að ná því markmiði er í gildandi fjármálaáætlun gert ráð fyrir að framlög hins opinbera verði aukin um 200 milljónir króna á næstu fjórum árum.

Eins og áður hefur verið greint frá lækka komugjöld í heilsugæslu úr 700 krónum í 500 krónur 1. janúar næstkomandi. Þá verður einnig fellt niður sérstakt komugjald hjá þeim sem sækja aðra heilsugæslustöð ein þeir eru skráðir hjá. Um áramótin tekur heilsugæslan um allt land við skimunum fyrir krabbameini í leghálsi og lækkar þá gjald fyrir leghálsstrok úr 4.818 krónum í 500 krónur.

„Hér eru stigin mikilvægt skref til þess að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga fyrir heilbrigðisþjónustu sem er afgerandi þáttur í því að jafna aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu og sporna við heilsufarslegum ójöfnuði af félagslegum og fjárhagslegum ástæðum“ segir Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra.

Ritstjórn janúar 3, 2021 15:31