Tu Ha? Tu Bjö! í Hannesarholti

Nafn Jazz-blásara-kvartettsins: Tu Ha? Tu Bjö! hljómar eins og auto correct hafi komist í fullkomlega eðlilegan texta og umbreytt honum í vitleysu en skýringin á nafninu fæst fljótt þegar menn skoða nöfn meðlima kvartettsins. Þessir frábæru djassgeggjarar koma fram í Hannesarholti á morgun laugardaginn 15. apríl kl. 20 í aðdraganda að upptökum á fyrstu hljómplötu sveitarinnar! Nýtt efni í bland við gamla slagara. Villt sköpunargleði og tilraunastarf sem verður fangað á segulband sléttri viku síðar. Kvöld sem enginn menningarspekúlant ætti að láta fram hjá sér fara.

Tu Ha? Tu Bjö! er kvartett sem mætti skilgreina sem eins konar „tvöfalt dúó“ og hefur verið starfandi með hléum í nokkur ár. Hann leikur einungis frumsamin verk eftir meðlimi og kannar líkindi tveggja blásturshljóðfæra en varpar jafnframt ljósi á sérstöðu fjögurra flytjanda. Hið sameiginlega og hið ólíka verða tvær hliðar sama penings. Liðsmenn flétta tónsmíðar sínar saman við frjæalsan spuna. Kosmós við kaós. Tu Ha? Tu Bjo¨!

Tumi Torfason : trompet

Hannes Arason : trompet

Tumi Árnason : saxófónn

Björgvin Ragnar Hjálmarsson : saxófónn

Það er alltaf notalegt að koma í Hannesarholt og fáir staðir jafngóðir til að njóta tónlistar.
Ritstjórn febrúar 14, 2025 12:16