Tvær hörkugóðar sakamálasögur

Blómaskeið íslenskra glæpasagna er án nokkurs efa runnið upp. Hugarflugi höfunda virðast engin takmörk sett og sífellt bætast við nýir í hópinn. Fjölbreytnin er mikil sumar eru dimmar og drungalegar eins og íslenskt hraun en aðrar byggja fyrst og fremst á persónum og flóknu samspili þeirra í milli. Hér eru tvær frábærar er falla undir þá skilgreiningu.

Áhrifamikil saga um flókin fjölskyldumynstur

Eva Björg Ægisdóttir er án nokkurs vafa einn okkar allra besti glæpasagnahöfundur. Hún vex með hverri bók og Þau sem urðu eftir er sérlega eftirtektarverð. Eva Björg kafar hér ofan í sambönd mæðra við börn sín og veltir fyrir sér hvort kærleikurinn geti orðið of þrúgandi, of mikill og viðleitnin til að vernda börnin skaðað þau fremur en skýlt þeim.

Auglýsing

Rakel er grunnskólakennari og á leið í vinnuna þegar hún sér í dyrabjöllumyndavélinni í símanum sínum að samstarfskona manns hennar stendur fyrir utan heimili þeirra. Skömmu áður hafði hún komið að þeim tveimur að spjalla saman á samkomu á vegum vinnunnar og sambandið milli þeirra virst nánara en eðlilegt getur talist þegar eingöngu er um vinnufélaga að ræða. Þetta verður til þess að hugur Rakelar hvarflar frá akstrinum og hún lendir í alvarlegum árekstri.

Hún vaknar upp á sjúkrahúsi búin að missa annan fótinn og maðurinn hennar tilkynnir henni að hann vilji skilnað. Áfallið er mikið og um tíma veit Rakel ekki hvaða stefnu hún vill taka í lífinu en svo kviknar hugmyndin að því að gera þætti um óleyst sakamál. Þegar kona vindur sér að henni á veitingahúsi og biður hana að gera þætti um vinkonu sína er hvarf fyrir þrjátíu árum ætlar Rakel sér í fyrstu að láta kyrrt liggja, enda málið íslenskt og viðkvæmt, eins og allt er gerist í litlum samfélögum en samúð hennar með konunni verður til þess að hún byrjar að skoða málið og fyrr en varir hefur hlaðvarp hennar þotið upp eftir vinsældalistum. Ekki nóg með það samfélagsmiðlar loga og ekki virðast allir hafa sagt satt og rétt frá því sem gerðist þetta kvöld.

Að þessu sinni fjallar Eva Björg um flókin fjölskyldumynstur og hvernig þau geta leitt fólk á alvarlegar villigötur. Bækur Evu Bjargar er ævinlega drifnar áfram af samskiptum milli fólks og hvernig ást, aðdáun og væntumþykja geta snúist upp í andhverfu sína eða leitt til þess að annars gott fólk geri slæmi hluti. Eva Björg ter frábær höfundur og tekst ævinlega að skapa áhugaverðar og spennandi fléttur. Þessi er svo grípandi að það er engin leið að leggja hana frá sér fyrr en henni er lokið.

Leyndarmál grafið upp úr moldinni

Þegar gömul bein finnast fyrir tilviljun hefja Tófa eða Torfhildur og Alfreð lögreglumenn á Suðurlandi að rannsaka málið. Þau komast fljótt að því að líkamsleifarnar eru af Finnboga, ungum efnilegum námsmanni sem hvarf fyrir 35 árum skömmu áður en hann átti að halda út Bandaríkjanna í nám. Þessi óvænti beinafundur gefur von um að leyndardómurinn um hvað kom fyrir Finnboga verði loksins leystur.

Hann hafði verið í partíi ásamt öðrum ungmennum í heimabæ sínum kvöldið sem hann hvarf og slegist við einn strákanna þar Hrafn að nafni, en sá var ofbeldishneigður og kom frá brotnu.  Bar Hrafn á ábyrgð á dauða Finnboga? Fyrrverandi kærasta hans, Snæfríður, vill sem minnst tjá sig við lögregluna og hún er uppburðarlítil og virðist ófær um að standa með sjálfri sér en Tófu grunar að hún viti meira um hvarfið en hún fæst til að tala um.

Tófa nýlega flutt aftur heim á æskuheimili sitt. Pabbi hennar er kominn á dvalarheimili fyrir aldraða í bænum en mamma hennar dáin. Hún er ófrísk en ein á báti og á erfitt með að koma sér að verki við að taka upp úr kössum, laga heimilið að sínum smekk og þörfum og undirbúa almennilega komu barnsins.

Hér eru mannleg samskipti og tengsl í forgrunni eins og í bókum Evu Bjargar. Erfiðar aðstæður draga fram mismunandi eiginleika í skapgerð fólks og unglingar flækjast oft inn í atburðarás sem þau ráða ekki við. Það er ekki einfalt mál að finna út hvað gerðist í partíi fyrir 35 og hver eftirleikurinn var eftir að Finnbogi gengur þaðan út. En Tófa og Alfreð er ákveðin í að komast að sannleikanum og færa Kristbjörg móður hans frið í sálina.

Þuríður Ósk Sigurbjörnsdóttir er ný rödd í kór glæpasagnahöfunda og svo sannarlega ekki hjáróma. Moldin man er ansi vel uppbyggð og skemmtilega fléttuð saga. Þuríður Ósk skapar trúverðugar  og skemmtilegar persónur og sagan er bæði áhugaverð og spennandi.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.