Vesturbæjarlaug opnar að nýju

Sund er mikilvægur þáttur í heilsurækt margra og allir eiga sér sína uppáhaldslaug. Þeir sem hafa kosið Vesturbæjarlaugina geta tekið gleði sína að nýju því laugin opnar eftir umfangsmiklar viðgerðir þann 19. júlí næstkomandi.

Upphaflega var gert ráð fyrir ákveðnum tímafresti á lokun, en þegar unnið er að endurbótum á eldri mannvirkjum, geta komið upp ófyrirséð atriði sem hafa áhrif á framvindu verksins. Til stóð að opna aftur á morgun þriðjudaginn 15. júlí, en af óviðráðanlegum orsökum lengist viðhaldslokunin um fjóra daga og Vesturbæjarlaugin opnar á ný laugardaginn 19. júlí næstkomandi klukkan 9:00.

Anna Kristín Sigurðardóttir, forstöðumaður Vesturbæjarlaugar, segir að í svona viðgerðum geti alltaf komið eitthvað upp sem valdi töfum, en allt kapp er nú lagt á að klára viðgerðina í tæka tíð. „Við þökkum innilega fyrir skilning og þolinmæði. Það eru bara fjórir dagar í opnun og við hlökkum til að taka á móti ykkur þann 19. júlí næstkomandi. Vesturbæjarlaugin verður sem ný,“ segir Anna Kristín.